Slysið hafði alvarleg áhrif

Jón og Jóga Gnarr prýða forsíðu MAN.
Jón og Jóga Gnarr prýða forsíðu MAN.

Jóga og Jón Gn­arr prýða nýj­ustu forsíðu MAN en blaðið kem­ur út á morg­un. Nú er Jón bú­inn að skrifa sögu Jógu, Þúsund koss­ar, en hún lenti í slysi í New York 1981 sem hafði djúp­stæð áhrif á líf henn­ar. Hún slasaðist al­var­lega á höfði og mjöðm. Um þetta ræða þau í viðtal­inu og líka hvernig er að sam­eina fjöl­skyldu og láta hlut­ina ganga upp. 

Jóga og Jón fóru að draga sig sam­an þegar hún var 39 ára og hann 33 ára. Hún þá með einn 14 ára son og hann frá­skil­inn með þrjú börn, 13 ára strák, 11 ára stelpu og 8 ára stelpu. Jón seg­ir frá þeirra fyrstu al­vöru kynn­um.

„Við viss­um hvort af öðru í gegn­um sam­eig­in­lega vini og tengd­umst bæði Smekk­leysu hópn­um, en á ólík­an hátt. Ég fékk svo tak í bakið og það var ein­hver sem mælti með að ég fengi mér tíma hjá Jógu. Viðkom­andi fékk tíma fyr­ir mig sem ég svo stein­gleymdi og var á vappi niðri í bæ þegar sím­inn hringdi. Það var Jóga sem var á lín­unni og benti mér á að  ég hefði pantað tíma og ekki mætt og það væri óá­sætt­an­legt – þannig hefði ég eytt henn­ar tíma. Þetta kom mér mjög á óvart, hún var rosa­lega ákveðin og ég var al­veg með móral yfir að hafa gleymt þessu. Ég vissi þó í raun hver Jóga var frá því ég var svona 13 ára, ég hékk mikið í bæn­um að þvæl­ast þar sem Jóga var þá að selja skart­gripi sem hún hafði hannað á markaði á Lækj­ar­torgi og maður sogaði allt svona í sig.“

Því má segja að þau hafi vitað hvort af öðru frá því á unglings­ár­um en  svo ekki kynnst fyr­ir al­vöru fyrr en á fer­tugs­aldr­in­um með sam­tals fjög­ur börn. „Á þess­um tíma var ég að skipu­leggja ung­linga­nám­skeið sem ég ætlaði að setja af stað og var kom­in með fólk til að vinna að því með mér, mig vantaði bara hús­næði. En þá mætti Jón með sín þrjú og ég með einn fyr­ir svo ég hugsaði með mér. Þetta er bara heimsend­ing á ung­linga­nám­skeiði,“ seg­ir hún í viðtal­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda