Konurnar í lífi landsliðsmannanna

Eiginkonur og kærustur landsliðsmannana sem fara á HM í knattspyrnu …
Eiginkonur og kærustur landsliðsmannana sem fara á HM í knattspyrnu í sumar eru stórglæsilegar kjarnakonur. Samsett mynd

Eftir mánuð leikur Ísland sinn fyrsta leik á HM í knattspyrnu. Margir stuðningsmenn liðsins eru búnir að tryggja sér farseðil til Rússlands en meðal þeirra eru eflaust fjölskyldur landsliðsmannanna, þar á meðal eiginkonur og kærustur. Smartland fór yfir betri helming nokkurra landsliðsmanna. 

Markmaðurinn Hannes Þór Halldórsson er giftur Höllu Jónsdóttur. Hannes og Halla giftu sig í Háteigskirkju um áramótin. 

Halla sést hér á leið í brúðkaup sitt og Hannesar.
Halla sést hér á leið í brúðkaup sitt og Hannesar. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Kærasta Sverris Inga Ingasonar er samkvæmisdansarinn Hrefna Dís Halldórsdóttir en Hrefna Dís tók þátt í þættinum Allir geta dansað í vetur með fyrrverandi frjálsíþróttamanninum Jóni Arnari Magnússyni. 

Hrefna Dís og Sverrir Ingi ásamt þeim Gylfa og Alexöndru …
Hrefna Dís og Sverrir Ingi ásamt þeim Gylfa og Alexöndru Helgu. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Ari Freyr er giftur Ernu Kristínu Ottósdóttur einkaþjálfari en þau búa í Belgíu ásamt sonum sínum. Þess má geta að Erna Kristín er afbragðsbakari eins og má lesa á matarvef mbl.is. 

Hörður Bjögvin Magnússon býr í Bristol ásamt Móeiði Lárusdóttur. Móeiður hefur látið til sín taka í bloggheiminum og hefur bloggað á Femme.is. 

Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin.
Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson kvæntist fitnesdrottningunni Kristbjörgu Jónasdóttur síðasta sumar og eiga þau nú von á sínu öðru barni. 

Kristbjörg Jónasdóttir og Aron Einar.
Kristbjörg Jónasdóttir og Aron Einar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jóhann Berg Guðmundsson og Hólmfríður Björnsdóttir trúlofuðu sig á dögunum en saman eiga þau eina dóttur. 

Jóhann Berg og Hólmfríður.
Jóhann Berg og Hólmfríður. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Emil Hallfreðsson býr á Ítalíu ásama eiginkonu sinni, Ásu Maríu Reginsdóttur, og börnum. Hjónin giftu sig í júní árið 2012. 

Ása María Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson á brúðkaupsdaginn.
Ása María Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson á brúðkaupsdaginn. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Konan á bak við Gylfa Þór Sigurðsson er Alexandra Helga Ívarsdóttir. Alexandra Helga vakti fyrst athygli þegar hún var kosin ungfrú Ísland árið 2008.

Gylfi Sigurðsson og Alexandra Helga Ívarsdóttir á EM í Frakklandi.
Gylfi Sigurðsson og Alexandra Helga Ívarsdóttir á EM í Frakklandi. Skapti Hallgrímsson

Konan á bak við Ólaf Inga Skúlason er Sigurbjörg Hjörleifsdóttir. Hjónin eiga þrjú börn en eru í fjarbúð eins og kom fram í þættinum Draumurinn um HM á Rúv. 

Ólafur Ingi Skúlason og Sigurbjörg Hjörleifsdóttir.
Ólafur Ingi Skúlason og Sigurbjörg Hjörleifsdóttir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Arnór Ingvi Traustason býr í Malmö ásamt Andreu Röfn Jónasdóttur. Andrea hefur notið velgengni sem fyrirsæta en hún er einnig bloggari á Trendnet. 

Andrea Röfn Jónasdóttir og Arnór Ingvi Traustason
Andrea Röfn Jónasdóttir og Arnór Ingvi Traustason mbl.is/Stella Andrea

Fríða Rún Einarsdóttir er konan á bak við Alfreð Finnbogason. Alfreð og Fríða Rún eignuðust dótturina Viktoríu fyrir ári. 

Fríða Rún Einardóttir og Alfreð Finnbogason á leið í brúðkaup …
Fríða Rún Einardóttir og Alfreð Finnbogason á leið í brúðkaup Arons Einars og Kristbjargar í fyrra. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

María Ósk Skúladóttir er konan á bak við Jón Daða Böðvarsson en parið trúlofaði sig í janúar í fyrra. 

Jón Daði Björgvinsson og María Ósk Skúladóttir.
Jón Daði Björgvinsson og María Ósk Skúladóttir. Ljósmynd/Samsett
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál