„Ég er ungfrú Ísland þú átt ekki séns“

Hvítvínskonan og Alexandra Helga Ívarsdóttir eins klæddar.
Hvítvínskonan og Alexandra Helga Ívarsdóttir eins klæddar.

Al­ex­andra Helga Ívars­dótt­ir, unn­usta Gylfa Þórs Sig­urðsson­ar, var gæsuð af full­um krafti í gær. Parið ætl­ar að ganga í heil­agt hjóna­band á Ítal­íu í sum­ar.

Árið 2008 varð Al­ex­andra ung­frú Ísland og keppti í fram­hald­inu í Miss World. Meðan á þessu æv­in­týri stóð bloggaði hún á blog.is. Að sjálf­sögðu var þessi fer­ill rifjaður upp á gæsa­dag­inn þar sem hún var klædd upp í feg­urðardrottn­ing­ar­kjól og lát­in kaupa í mat­inn með borðann og allt. Vakti þetta kátínu meðal gesta. 

Hér er Alexandra Helga árið 2008. Þá var hún 18 …
Hér er Al­ex­andra Helga árið 2008. Þá var hún 18 ára nemi úr Grafar­vogi sem sigraði í keppn­inni Ung­frú Ísland en Ingi­björg Ragn­heiður Eg­ils­dótt­ir, 23 ára Aust­f­irðing­ur, varð í öðru sæti og Sonja Björk Jóns­dótt­ir, 18 ára úr Svarfaðar­dal, í þriðja sæti. mbl.is// Har­ald­ur Guðjóns­son

En það var ekki það eina sem hún gerði því hún fór í hljóðver og söng lag með Rottweiler-hund­un­um og voru vin­kon­ur henn­ar bún­ar að búa til nýj­an texta. Ein lín­an í text­an­um var eft­ir­far­andi:

„Ég er ung­frú Ísland þú átt ekki séns.“

Svo var farið á í brunch á Bryggj­una brugg­hús, í dans­kennslu í Kram­húsið og svo var slegið upp teiti í miðbæ Reykja­vík­ur þar sem Hvít­víns­kon­an sem leik­in er af Hjálm­ari Erni fór á kost­um. Á tíma­bili voru Al­ex­andra og Hvít­víns­kon­an eins klædd­ar. 

Svo kom Erp­ur Ey­vind­ar­son og tryllti mann­skap­inn og að lok­um var karlpen­ingn­um hleypt inn en þá var Al­ex­andra búin að syngja með Erpi og skemmta sér kon­ung­lega eins og sást víða á In­sta­gram í gær­kvöldi og í nótt. 

Gylfi Þór Sigurðsson og unnusta hans, Alexandra Helga Ívarsdóttir, árið …
Gylfi Þór Sig­urðsson og unn­usta hans, Al­ex­andra Helga Ívars­dótt­ir, árið 2017. mbl.is/​Skapti Hall­gríms­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda