Endaðir þú eins og Guðrún Veiga 4. maí?

Guðrún Veiga hefur sankað ýmislegu að sér á meðan samkomubanninu …
Guðrún Veiga hefur sankað ýmislegu að sér á meðan samkomubanninu stóð. skjáskot/Instagram

Slakað var á sam­komu­banni á miðnætti og því marg­ir snún­ir aft­ur á vinnustaðinn sinn eft­ir margna vikna heima­vinnu. Marg­ir voru spennt­ir að drífa sig í klipp­ingu, lit­un og í ann­ars­kon­ar snyrtimeðferðir. 

Nú þegar slakað hef­ur verið á sam­komu­bann­inu virðast marg­ir hafa rankað við sér og áttað sig á því hvað þeir voru að gera á meðan bann­inu stóð. Marg­ir hafa ef­laust farið offorsi í net­versl­un­um hverskyns og því margt dúkkað upp á heim­il­inu á síðustu vik­um sem ann­ars hefði ekki átt heima í net­versl­un­ar­körf­unni. 

Sam­fé­lags­miðlastjarn­an Guðrún Veiga Guðmunds­dótt­ir, bet­ur þekkt sem Gveiga sýndi afrakst­ur sam­komu­banns­ins á In­sta­gram í dag, þar sem má meðal ann­ars finna krullu­hettu, visku­stykki, pottaleppa og ofn­hanska í stíl, stand fyr­ir uppþvotta­lög og bursta og púða sem Gveiga seg­ir að passi ekki nein­staðar á heim­ilið. 

Þar að auki pantaði hún snakk til Vest­manna­eyja, þar sem hún býr nú, og greiddi 2 þúsund krón­ur fyr­ir send­ing­ar­gjaldið. Einnig er á mynd­inni rif­blaðka sem hún seg­ist ekki kunna að sjá um.

Guðrún Veiga með allt góssið.
Guðrún Veiga með allt góssið. skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda