Björn Ingi hjá Viljanum mættur á Tinder

Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans er á Tinder.
Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans er á Tinder. Ljósmynd/Facebook

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, er á stefnumótavefnum Tinder ásamt fjölmörgum öðrum Íslendingum. Björn Ingi hefur verið töluvert í fréttum upp á síðkastið og setti hann svip sinn á kórónuveirufaraldinn með líflegum spurningum á upplýsingafundum þríeykisins, Ölmu, Víðis og Þórólfs. 

Björn Ingi er nú í lausagangi en hann var áður kvæntur Kolfinnu Von Arnardóttur en leiðir þeirra skildi í fyrra eftir nokkurra ára hjónaband. 

Vinsældir stefnumótaforritsins Tinder hafa sjaldan verið meiri enda fátt þægilegra en að geta setið uppi í sófa í náttfötunum og kynnst nýju fólki. Sér í lagi meðan barir, líkamsræktarstöðvar og skemmtistaðir voru lokaðir. 

Björn Ingi er fæddur í ágúst og er í Ljónsmerkinu. Í maíspá Siggu Kling kom fram að Ljónið væri að fara í andlegt og veraldlegt ferðalag og kæmi til baka mun sterkara. 

„Í ást­inni skaltu hafa trygg­lyndi og heiðarleika sem aðal­mark­miðið og standa þétt við bakið á þeim sem þú hef­ur. En ef þú ert að skoða þig um og vilt fá lífs­föru­naut þá er þetta og næstu mánuðir góður tími til þess. Ástin blómstr­ar því sjálfs­traustið blómstr­ar og það skipt­ir engu máli á hvaða aldri þú ert því óvænt tíðindi eru í kort­un­um,“ segir Sigga Kling í maíspánni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál