Salka Sól: „Ekkert tabú að vera á kvíðalyfjum“

Salka Sól Eyfeld var gestur í hlaðvarpsþættinum Hæ hæ.
Salka Sól Eyfeld var gestur í hlaðvarpsþættinum Hæ hæ. mbl.is/Styrmir Kári

Tón­list­ar­kon­an Salka Sól Ey­feld var gest­ur Helga og Hjálm­ars í hlaðvarpsþætti Hæ Hæ. Salka Sól ræddi fer­il­inn og lífið í þætt­in­um og kom meðal ann­ars inn á kvíða sem hún hef­ur nú náð góðum tök­um á. 

„Ég er al­gjör kvíða- og þung­lynd­is­bofsi og ég þarf að vanda mig mjög mikið,“ sagði Salka Sól op­in­skátt og hélt áfram að ræða kvíðann. „Ég er búin að læra inn á þetta. Ég bara þekki mig. Ég get farið að stoppa þegar ég finn kvíðann fara yfir. Okei hvað þarf ég að gera til þess að kvíða ekki þessu. Klára þetta, klára þetta og sjáðu svo til. En þegar ég var yngri, bara meira að segja í grunn­skóla og eitt­hvað svona var ég oft bara mjög þung­lynd,“ sagði Salka Sól og sagði að hún kynni ekki á til­finn­ing­arn­ar. „Var þung­lynd, var leið og fór í fýlu, lokaði mig inni í her­bergi skil­urðu. Með tíð og tíma, ég veit ekki hvernig þetta er fyr­ir aðra, en ég hef lært inn á mitt.“

Eft­ir að Salka Sól varð þekkt fékk hún kvíða fyr­ir að vera í marg­menni. Hún náði síðan tök­um á því eins og öðru tengdu kvíðanum.

„Ég hef al­veg verið á kvíðalyfj­um svona on og off skil­urðu stund­um og bara vitað hvenær ég þarf þau og hvenær ég þarf þau ekki og er bara mjög opin með það. En það er líka ógeðslega góð til­finn­ing, ég held að það hafi gerst eft­ir þrítugt, ógeðslega góð til­finn­ing að læra inn á það, bara svona þekkja það.“

Salka Sól vildi meina að kvíðalyf væru ekki svo mikið tabú leng­ur. 

„Þetta er bara verk­færi. Þetta er bara eitt af þess­um verk­fær­um sem við eig­um að nýta okk­ur, að sjálf­sögðu, en bara fara vel með það og gera það í sam­ráði við lækni og eitt­hvað. Ég held að ef þú færð haus­verk þá tek­ur þú íbú­fen, eða whatever, þetta er bara þannig. Mér finnst ekk­ert, ekk­ert tabú að vera á kvíðalyfj­um.“

Hægt að hlusta á þátt­inn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda