Athafnakonan Ásdís Rán er nýlega orðinn einhleyp kona og finnst stefnumótamarkaðurinn á Íslandi ekki vera upp á marga fiska. Ásdís ræddi við Helga Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson um lífið sem einhleyp kona og stefnumótamarkaðinn í þáttunum Hæ hæ: Ævintýri Helga og Hjálmars.
„Til dæmis eru karlmenn alveg hættir að bjóða út að borða. Þeir eru hættir að dekra konur. Allar vinkonur mínar sem eru single – það er ekki einn maður sem býður þeim út að borða til að kynnast þeim. Það er annaðhvort heim að ríða – eða ekki neitt. Það er enginn herramennska í gangi. Úti ef þú myndir dirfast að gera eitthvað svona … hitt er bara aumingjaskapur.“
Ástæðuna rekur Ásdís til ójafnvægis meðal kynjanna. „Þú getur alveg verið sterk kona – en það má ekki troða svona mikið á karlmönnum.“
Hún segir að karlar megi helst ekki gera neitt í dag. „Ég er búin að segja þetta oft ég er alltaf dæmd fyrir það. Mér finnst virðingin svolítið dottinn af mönnunum – og þeir eru orðnir svolítið „useless“ með tímanum. Konurnar vilja borga. Þær vilja vinna. Þær vilja gera allt. Karlinn bara kemur heim: Og já elskan. Og þegir.“
Varðandi næsta maka segir Ásdís. „Ég er komin á þann aldur að ég er gömul – og ætla ekki að setja neinar … ég veit bara þegar ég hitti einhvern.“
Þáttinn má nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á hlaðvarpsvef mbl.is.