„Finnst þér í lagi að tala svona við mig?“

00:00
00:00

Gauti Þeyr mætti í hlaðvarpið Hæ hæ – Ævin­týri Helga og Hjálm­ars á dög­un­um. Gauti hef­ur sjald­an verið þekkt­ur fyr­ir að liggja á skoðunum sín­um – og oft lent í þeyti­vindu at­huga­semda­kerf­anna. Hann var spurður hvernig áhrif það hefði á hann.

„Ég væri að ljúga ef ég segði að það snerti mig ekki. Þetta hef­ur mis­mun­andi áhrif. Eins og þegar ég tók krakka­skíta-djókið. Þá var það bara grín,“ seg­ir Gauti. 

Hann lenti í tals­verðum stormi eft­ir um­mæli á Twitter um þátt­tak­end­ur á Rey Cup í miðjum heims­far­aldri. „Ég fékk svo ljót komm­ent á mig. Nei við erum að tala um: „Haltu kjafti þarna ógeðis has-been draslið þitt. Viltu ekki bara fokka þér? Finnst þér í lagi að tala svona við börn“,“ seg­ir Gauti.

Hann var al­veg hvumsa, sér­stak­lega yfir for­eldr­um sem þótt­ust vera að ala hann upp, og voru virki­lega orðljót­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda