Kristín Pétursdóttir er komin á fast

00:00
00:00

Leik­kon­an Krist­ín Pét­urs­dótt­ir greindi frá því í nýj­asta hlaðvarpsþætti Hæ hæ - Ævin­týri Hjálm­ars og Helga að hún væri kom­in á fast. Krist­ín sagði þó ekki hver sá heppni væri í viðtal­inu.

Þegar í ljós kom að það væri maður í spil­inu hófst yf­ir­heyrsl­an fyr­ir al­vöru. „Ég veit reynd­ar ekki síma­núm­erið hans,“ svaraði Krist­ín þegar Helgi bauðst til að hringja í hann í miðjum þætti. Strák­arn­ir spurðu næst hvort hann ætti börn. „Nei. Sem er fínt sko. Þetta er al­veg nógu flókið,“ svaraði Krist­ín.

Þegar Helgi og Hjálm­ar spurðu hversu lengi þau hefðu verið að hitt­ast sagði hún að þau hefðu verið að hitt­ast í tölu­verðan tíma. 

Hjálm­ar sagðist ekk­ert hafa séð um nýja mann­inn á In­sta­gram hjá Krist­ínu - þótt hann fylgd­ist náið með henni þar. Krist­ín sagðist frek­ar vilja fara leynt með þessi mál - en ólíkt barns­föður Krist­ín­ar þá er sá nýi ekki áhrifa­vald­ur. Nýja deitið er þó huldumaður enn um sinn - þar sem Krist­ín stóð af sér stífa yf­ir­heyrsl­una.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

Kristín Pétursdóttir.
Krist­ín Pét­urs­dótt­ir. skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda