Sölvi fjarlægir allt af YouTube

Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason.
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason. Ljósmynd/Aðsend

Fjöl­miðlamaður­inn Sölvi Tryggva­son hef­ur haldið úti vin­sælli rás á YouTu­be þar sem hann hef­ur birt hlaðvarp sitt, Podcast með Sölva. Nú hef­ur hann fjar­lægt allt sitt efni af veit­unni. Það gerði hann eft­ir að kon­ur stigu fram og sögðu að hann hefði beitt þær of­beldi. Í kjöl­farið steig hann sjálf­ur fram og sagðist vera sak­laus. 

„Síðustu daga hafa gengið ótrú­lega rætn­ar slúður­sög­ur um mig í þjóðfé­lag­inu sem eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um. Þetta gekk meira að segja svo langt að einn fjöl­miðill birti frétt um slúður­sög­una án þess þó að nafn­greina mig. Í frétt fjöl­miðils­ins kom fram að fyr­ir um tveim­ur vik­um hefði þjóðþekkt­ur ein­stak­ling­ur, sem sam­kvæmt sög­unni er ég, keypt sér kyn­lífsþjón­ustu, gengið í skrokk á vænd­is­kon­unni, verið hand­tek­inn og flutt­ur í varðhald. Um þetta er bara eitt að segja: málið er þvætt­ing­ur frá upp­hafi til enda.

Ég get ekki sagt ykk­ur hvað þess­ar sög­ur hafa haft mik­il áhrif á mig, fjöl­skyldu mína og vini. Ég hef verið sem lamaður síðustu daga og neitaði lengi vel að trúa að fólk tæki þátt í að dreifa slúður­sög­um sem þess­um. Frá því um helg­ina hef­ur sím­inn minn ekki stoppað vegna fyr­ir­spurna frá fjöl­miðlum um hvort þess­ar sög­ur séu sann­ar. Þegar málið er komið á það stig verð ég að bregðast við. Niður­brot­inn og svefn­laus leitaði ég í gær til Sögu Ýrar Jóns­dótt­ur hæsta­rétt­ar­lög­manns til að at­huga stöðu mína og hvernig ég ætti að bregðast við. Hún sagði mér að auðvelt væri að afsanna þetta með því að kalla inn mála­skrá mína hjá lög­reglu und­an­far­inn mánuð þar sem ljóst væri að ef lög­regl­an hefði haft ein­hver af­skipti af mér, bein eða óbein, þá kæmu þau fram í mála­skránni. Saga kallaði því eft­ir mála­skránni og feng­um við hana af­henta fyr­ir stundu og birti ég hana hér með. Eins og þarna kem­ur skýrt fram hef­ur lög­regl­an ekki haft nein af­skipti af mér, bein eða óbein, á þeim tíma sem þessi at­vik eiga að hafa átt sér stað. Þetta verður ekki skýr­ara. Það er ekk­ert til í þess­um slúður­sög­um.

Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél sem slúður­sög­ur eru. Þær eru mann­skemm­andi, niður­brjót­andi og hafa valdið mér og mín­um meira hug­ar­angri en ég hefði getað ímyndað mér. Ég verð alltaf jafn undr­andi á að fólk sé til í að tala illa um ná­ung­ann; fólk af holdi og blóði með til­finn­ing­ar og fjöl­skyldu. Hætt­um þessu!

Raun­ar líður mér svo illa að ég treysti mér ekki til að tjá mig frek­ar um málið og bið ég fjöl­miðla um að virða þá ósk mína,“ skrif­ar Sölvi. 

Í síðustu viku birti hann viðtal við sjálf­an sig í hlaðvarpsþætt­in­um þar sem lögmaður­inn Saga Ýrr Jóns­dótt­ir var gest­ur hans. Viðtalið vakti mikla at­hygli en í vik­unni sagði Saga Ýr sig frá mál­inu og játaði að hafa farið yfir strikið með því að mæta í hlaðvarpsþátt­inn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda