Rúna Sif Rafnsdóttir er kona ársins!

Rúna Sif Rafnsdóttir.
Rúna Sif Rafnsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rúna Sif Rafns­dótt­ir er kona árs­ins á Smartlandi. Les­end­ur kusu og lang­flest at­kvæði komu í henn­ar hlut. Það er ekk­ert skrýtið því það eru ekki marg­ir sem eru til­bún­ir til þess að gefa af líf­fær­um sín­um til að bjarga lífi annarra. Hún bjargaði lífi lít­ils vin­ar, Elds Elís Bjarka­son­ar, en hon­um var vart hugað líf því hann þurfti nýja lif­ur. 

Rúna Sif prýðir forsíðu ára­móta­blaðs Smart­lands sem fylg­ir Morg­un­blaðinu í dag. Hún seg­ir að það hafi komið sér á óvart að hún væri kona árs­ins. 

„Mér finnst þetta mjög óraun­veru­legt og stórt. Mér finnst það merki­legt og ekki eitt­hvað sem ég hafði velt fyr­ir mér þegar þetta magnaða og óvænta ferðalag hófst. Það að sjá nafn sitt mikið til umræðu und­an­farið hér og þar, að fá þenn­an mikla heiður frá ykk­ur með að vera kos­in kona árs­ins og að fá all­ar þess­ar fal­legu kveðjur frá fólki sem ég þekki og þekki ekki er mikið og stórt. En þessi saga er líka svo stór og fal­leg. Það sem ég gerði var stórt og ég skil að fólk sjái það, en þarna var lítið barn í neyð og þurfti hjálp til að halda líf­inu. Ég finn ekki orðin yfir hversu þakk­lát ég er hvernig þetta fór og að ég hafi getað hjálpað,“ seg­ir Rúna Sif.  

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni í Morg­un­blaðinu í dag. 

Rúna Sif Rafnsdóttir og Marta María Winkel Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála …
Rúna Sif Rafns­dótt­ir og Marta María Win­kel Jón­as­dótt­ir frétta­stjóri dæg­ur­mála mbl.is. Smart­land færði henni blóm­vönd og gjafa­kort í Mat­hilda í Kringl­unni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Rúna Sif Rafnsdóttir prýðir forsíðu áramótablaðs Smartlands.
Rúna Sif Rafns­dótt­ir prýðir forsíðu ára­móta­blaðs Smart­lands.
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda