Katrín Tanja ástfangin í Bláa lóninu

Brooks Laich og Katrín Tanja Davíðsdóttir eyða valentínusardeginum hér á …
Brooks Laich og Katrín Tanja Davíðsdóttir eyða valentínusardeginum hér á Íslandi.

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir og kærasti hennar, fyrrverandi íshokkíkappinn Brooks Laich eyða Valentínusardeginum hér á Íslandi. Skelltu þau sér í Bláa lónið í tilefni dagsins. 

Laich er greinilega rómantískur maður en Katrín sýndi frá rósum á Instagram sem hann hafði gefið henni í tilefni dagsins. Þá birti hann fallega mynd af Katrínu í böðunum. 

Katrín birti sömuleiðis falleg myndband af þeim saman í Bláa lóninu. „Mesta lukka lífs míns að hann sé ástin mín. Til hamingju með Valentínusardaginn, ástin mín,“ skrifaði Katrín við myndbandið. „Verð aldrei þreyttur á þessu brosi, til hamingju með daginn ástin mín,“ skrifaði Laich í athugasemd við myndbandið.

Samband Katrínar og Laich hófst á síðasta ári en þau opinberuðu sambandið skömmu eftir að hún hafði lokið keppni á heimsleikunum í crossfit í byrjun ágúst. 

View this post on Instagram

A post shared by Brooks Laich (@brookslaich)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál