Myndi aldrei fara í fermingarfötin í dag

Sig­urður Þorri Gunn­ars­son eða Siggi Gunn­ars, fjöl­miðlamaður og skemmtikraft­ur með meiru, er á því að ferm­ing­ar­tíma­bilið sé ein­stak­lega skemmti­legt, enda aldrei hægt að fara í of marg­ar góðar veisl­ur yfir æv­ina.

„Það er sama hvað er mikið að gera hjá mér, ég sleppi ekki góðum veisl­um. Ég er í mik­illi törn í vinn­unni núna, með tvo dag­lega þætti í út­varp­inu á K100 ásamt því að stýra stöðinni. Svo er ég með bingóþætti mbl.is einu sinni í viku en það klár­ast núna um miðjan mars. Ég er far­inn að renna hýru auga til frís sem ég er bú­inn að panta mér. Ég ætla í tvær vik­ur til Teneri­fe og ferðast einn, það er nokkuð sem mig lang­ar að prófa og er spennt­ur fyr­ir. Það geng­ur vel í leik og starfi og ég er á fullu í lík­ams­rækt hjá frá­bær­um einkaþjálf­ara og stunda sjó­sund af mikl­um móð nokkr­um sinn­um í viku.“

Fermd­ist í brak­andi blíðu árið 2003

Sig­urður fermd­ist hinn 8. júní 2003 í brak­andi blíðu á Ak­u­eyri þar sem hann er fædd­ur og upp­al­inn.

„Ég verð nú að viður­kenna að ég man mjög lítið eft­ir ferm­ing­unni, annað en að hún fór fram í Ak­ur­eyr­ar­kirkju, hvítu kyrtl­arn­ir voru á sín­um stað og ef­laust trú­ar­játn­ing­in líka, sem ég verð einnig að viður­kenna að ég man ekki í dag!“

Sig­urður man tölu­vert bet­ur eft­ir veisl­unni. „Við héld­um garðveislu enda var veðrið ekta sum­ar­veður á Ak­ur­eyri, með logni, sól og hita.

Mamma mín er ein­stök þegar veisl­ur eru ann­ars veg­ar. Hún ger­ir geggjaðar kök­ur og heita rétti og það var sko nóg í boði í ferm­ing­unni þar sem sam­an var komið fullt af frá­bæru fólki sem mér þykir vænt um.

Ein­um veislu­gest­anna, frænku minni frá Texas, datt í hug að ég ætti að opna gjaf­ir og lesa af kort­um meðan á veisl­unni stæði.

Mér leist ekk­ert á það en gerði það svo og það var rosa­lega nota­leg stund. Við sát­um sam­an, ég las upp kort­in og tók utan af gjöf­un­um og þakkaði svo fólk­inu beint fyr­ir. Þetta var virkilga góður dag­ur í minn­ing­unni.“

Glaður að tíska ferm­ing­ar­barna skuli hafa breyst í gegn­um árin

Sig­urður er alltaf vel til fara og ber að margra mati af öðrum mönn­um í klæðaburði. Hann er óviss um að sú hafi verið raun­in á ferm­ing­ar­dag­inn hér um árið. „Jesús. Þarna var þjóðbún­ing­ur­inn þeirra í 17 sem er enn vin­sæll á herr­um og það var sko leigður þjóðbún­ing­ur á mig. Mig minn­ir að þessi bún­ing­ur hafi verið hannaður síðla á 10. ára­tugn­um og hann ber þess sterk merki. Það voru all­ir í þessu þá og al­gengt að menn giftu sig eða fermd­ust í þessu dressi, í vesti með töl­un­um og með hvítt slifsi.

Maður sér þenn­an bún­ing sjald­an í dag, enda eld­ist hann kannski ekki vel, en það er gam­an að eiga svona fína tísku­mynd af sér frá þess­um tíma.“

Var góð tónlist eða skemmti­atriði í ferm­ing­unni?

„Tónlist hef­ur alltaf skipt mig mjög miklu máli. Ég var því bú­inn að gera lagalista og brenna hann á disk sem síðan „mallaði“ und­ir í hátal­ara sem ég hafði sér­stak­lega tengt við míkró­fón, sem ég ætlaði að tala í þegar ég byði fólk vel­komið. Svo var ég svo feim­inn að ég hætti við það!“

Er enn þá að nota ferm­ing­ar­gjöf­ina

Það fal­leg­asta sem Sig­urður fékk í ferm­ing­ar­gjöf var hljóm­borð sem for­eldr­ar hans gáfu hon­um.

„Ég glamraði á það í mörg ár og á það enn.“

Hvað get­ur þú sagt okk­ur frá ferm­ing­ar­mynda­tök­unni?

„Það var Finn­bogi Marinós­son ljós­mynd­ari sem tók mynd­irn­ar en hann hef­ur tekið mynd­ir af ófá­um rokksveit­um. Því var smá rokksveit­ar­stemn­ing á mynd­un­um.“

Áttu gott ráð fyr­ir þá sem eru að ferm­ast í dag?

„Já, að njóta dags­ins með fólki sem þeim þykir vænt um og gott að vera í kring­um.“

Til að veisl­an verði skemmti­leg er Sig­urður á því að boðslist­inn skipti mestu máli.

„Ég mæli með að bjóða þeim sem þig lang­ar virki­lega að bjóða og hafa í kring­um þig. Með góðu fólki, í góðum anda er allt skemmti­legra.“

Það ættu all­ir að ferm­ast eins og þeir vilja

Sig­urður var vin­marg­ur sem barn og margt skemmti­legt brallað á ferm­ing­ar­tím­an­um.

„Við vin­irn­ir vor­um mikið í úti­leg­um og í því að tjalda í görðum hver ann­ars á sumr­in á þess­um árum. Mig minn­ir ein­mitt að við höf­um gist sam­an í tjaldi í ein­hverj­um garði nótt­ina fyr­ir ferm­ing­una.“

Ástæður þess að við ferm­umst geta verið mis­jafn­ar að hans mati.

„Við ætt­um því ekk­ert að vera að velta fyr­ir okk­ur hvernig næsti maður ger­ir þetta og á hvaða for­send­um. Eins vil ég segja við þá sem eru í vafa um hvort þeir eigi að ferm­ast að hafa ekki áhyggj­ur af því að vera öðru­vísi en aðrir. Gerðu þetta bara ná­kvæm­lega eins og þú vilt hafa þetta. Þig þarf raun­veru­lega að langa til að ferm­ast og að halda veislu til þess að njóta þess.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda