„Þennan mann verð ég að fá“

00:00
00:00

Fjöl­miðlahjón­in Snærós Sindra­dótt­ir og Freyr Rögn­valds­son eru gest­ir í hlaðvarp­inu Betri helm­ing­ur­inn með Ása. Snærós starfar á Rúv en Freyr er blaðamaður á Stund­inni. Þau kynnt­ust í rútu fyr­ir 14 árum og Snærós seg­ir að það hafi ekki orðið aft­ur snúið. 

„Við kynnt­umst í rútu,“ seg­ir Snærós og lýs­ir því hvernig henni leið þegar hún sá Frey fyrst.

„Það þyrmdi yfir mig. Þenn­an mann verð ég að fá,“ seg­ir hún og seg­ist aldrei hafa ef­ast. Hún seg­ist muna ná­kvæm­lega í hverju hún var, í hverju hann var, og seg­ir að það hafi verið mjög mikið út úr karakt­er hjá þeim báðum að vera stödd í teiti í rútu. En allt get­ur gerst.

Í þætt­in­um ræða þau allt milli him­ins og jarðar. Þau tala um verka­skipt­ingu á heim­il­inu, fjöl­miðlana og hvernig þau láta hlut­ina ganga sem best með ást­ina í for­grunni. 

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda