Hefði átt að fara beint inn á geðdeild

Kristján Einar Sigurbjörnsson segir að hann hefði átt að fara …
Kristján Einar Sigurbjörnsson segir að hann hefði átt að fara beint inn á geðdeild þegar hann losnaði úr fangelsinu. Skjáskot/YouTube

„Ég er ekki enn bú­inn að kveikja á mann­legu hliðinni. Ég veit ekki hvernig mér líður, ég veit ekki hvernig mér á að líða. Ég veit ekki hvernig ég á að haga mér? Hvað ger­ir maður eft­ir svona? Þetta verður aldrei tekið til baka,“ seg­ir Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son sem sat átta mánuði inni í fang­elsi á Spáni í viðtali við Sölva Tryggva­son.

Kristján losnaði úr fang­els­inu fyr­ir um viku síðan og seg­ist ekki vera byrjaður að vinna í áfall­inu. Hann lýs­ir svefn­leysi og að hann muni senni­lega aldrei ná að vinna al­menni­lega úr þess­ari lífs­reynslu.

„Þegar ég sofna. Alltaf sami draum­ur­inn, að ég sé kom­inn aft­ur í fang­elsið,“ seg­ir Kristján sem seg­ist vera hrædd­ur við að sofna og dæla sig í svefn­töfl­um til að reyna að finna ein­hverja ró.

Kristján seg­ir að hans varn­ar­viðbrögð séu að að brosa og hlæja og láta eins og ekk­ert sé. Hann sé kannski sniðugur og skemmti­leg­ur á sam­fé­lags­miðlum en und­ir niðri líði hon­um ekki þannig. „Ég held ég sé ekki bú­inn að átta mig á því hvað gerðist þarna inni,“ seg­ir Kristján. 

Hann seg­ir að hann hefði átt að fara inn á geðdeild um leið og hann kom til lands­ins. Ég held það gæti komið einn dag­ur þar sem ég dett bara í tauga­áfall.

„Það er allt á fullu. Það þarf allt að ger­ast núna. Ég þarf að bæta allt upp. Ég þarf að kaupa íbúð, kaupa nýj­an bíl. Það sem ég hefði átt að gera, og ætti að gera, er að leggja mig inn á geðdeild. Það er það sem ég ætti að gera. En ég er þrjósk­ur and­skoti og sjó­maður og maður á víst bara að harka þetta af sér,“ seg­ir Kristján Ein­ar og seg­ist al­mennt hafa tek­ist á við þannig áföll alla sína ævi. 

Vannærður í fang­els­inu

„Þetta voru bara kart­öfl­ur. Bara kart­öfl­ur. Annað hvort kart­öfl­ur stappaðar með lauk. Kart­öfl­ur í bát­um. Kart­öfl­ur í lalala. Þetta var eng­in nær­ing. Enda held ég að ég hafi tapað yfir 20 kíló­um þarna inni,“ seg­ir Kristján. 

Hann seg­ir það líka hafa verið erfitt að sofa í fang­els­inu. Hann hafi farið að sofa, dreymt að hann væri í fang­elsi, og síðan vaknað og verið í fang­els­inu. „Eina sem þú hugs­ar um all­an dag­inn er fang­elsi,“ seg­ir Kristján. 

„Það vissi eng­inn hvað var í gangi“

Kristján seg­ir að hann hafi losnað úr fang­els­inu sama dag og hann fékk fregn­ir af því að samn­ing­ur hafði nást í máli hans. Hann seg­ist ekki hafa náð að meðtaka til­finn­ing­ar og verið al­gjör­lega til­finn­inga­lega dof­inn.

Kristján seg­ist ekki enn vita al­menni­lega á hvaða grund­velli hann var frels­is­svipt­ur í átta mánuði. „Þetta er brotn­asta kerfi sem ég hef vitað af. Ef þú ert kom­inn inn, þá ertu fast­ur þarna inni,“ seg­ir Kristján. 

Hann seg­ir að brota­fer­ill hans hafi ekki haft áhrif á mál hans á Spáni. Kristján Ein­ar var sak­felld­ur fyr­ir fíkni­efna- og vopna­laga­brot árið 2019. Í héraðsdómi var hann einnig sak­felld­ur fyr­ir lík­ams­árás, en var sýknaður af henni í Lands­rétti í maí árið 2021. 

Viðtalið í heild sinni má nálg­ast á YouTu­be og á vefsíðu þátt­anna.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda