Sólveig og Halldór eru nýtt par

Sólveig Sigurðardóttir og Halldór Karlsson eru nýtt par.
Sólveig Sigurðardóttir og Halldór Karlsson eru nýtt par. Samsett mynd

Fatahönnuðurinn Halldór Karlsson og crossfit-stjarnan Sólveig Sigurðardóttir eru nýtt par. Halldór og Sólveig hafa verið að stinga saman nefjum undanfarna mánuði.

Halldór er útskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og hefur undanfarið unnið í búningadeild fyrir þættina True Detective: Night Country. Hann er einnig þjálfari í Mjölni og heldur úti hlaðvarpsþáttunum Sterakastið ásamt tvíburabróður sínum Benedikt Karlssyni og Böðvari Tandra Reynissyni, yfirþjálfara í Mjölni.

Sólveig keppti á heimsleikunum í crossfit á síðasta ári, en það var í fyrsta skipti sem hún komst alla leið á leikana í einstaklingskeppni. Lenti hún í 34. sæti. Nú er hún komin í undanúrslit fyrir heimsleikana. Tryggði hún sér 16. sæti í Evrópu um helgina.

Smartland óskar þeim til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál