„Ég er bara að liðast sundur af spenningi“

Sigrún Hlín Sigurðardóttir ætlar vestur um páskana.
Sigrún Hlín Sigurðardóttir ætlar vestur um páskana. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mynd­list­ar­kon­an Sigrún Hlín Sig­urðardótt­ir fer inn í pásk­ana eins og páskaungi sem er ný­bú­inn að klekj­ast út úr egg­inu. Ástæðan er ný mynd­list­ar­sýn­ing sem var opnaði ný­lega í kjall­ar­an­um í Epal á Lauga­vegi en Sigrún veit fátt betra en að skapa. Í dag er það mynd­list en þegar hún var yngri var það páska­skraut.

Hvernig verða pásk­arn­ir hjá þér í ár?

„Það verður svo mikið stuð að ég er bara að liðast sund­ur af spenn­ingi. Ég ætla að opna sýn­ing­una „Alltaf að“ á nýj­um prjónuðum verk­um í Galle­rí Úthverfu á Ísaf­irði og vit­an­lega nota ég ferðina til að fara á Aldrei fór ég suður. Svo hlakka ég líka svaka­lega til að kíkja á sýn­ing­una „Svik­ull silf­ur­ljómi“ sem Una Björg vin­kona mín er að opna á Súðavík í baka­leiðinni.“

Hvað finnst þér um páska­skraut og gula páskalit­inn?

„Ég er al­mennt afar hlynnt hvers kyns stemn­ingu þótt ég skreyti reynd­ar ekki mikið sjálf, og harmaði til dæm­is mjög sem barn að það væru ekki til nein hress páska­lög. Ég reyndi að syngja „Ég kveiki á kert­um mín­um“ en eng­um fannst skemmti­leg stemn­ing að heyra barn syngja um frels­ar­ann negld­an nak­inn sem níðing upp á kross. Í ár hugsa ég að ég láti staðar numið við páskapeys­una, heiðgula dún­mjúka mohair-dá­semd sem ég er ný­bú­in að kaupa í Hring­ekj­unni. Þetta er allt í þágu stemn­ing­ar­inn­ar, því gul­ur fer mér al­gjör­lega skelfi­lega. Ég kýs hann þó hik­laust fram yfir fjólu­blá­an, lit páska­föst­unn­ar sem minn­ir okk­ur á iðrun og yf­ir­bót. Ég var mikið í sunnu­daga­skóla sem barn.“

Hvað er ómiss­andi að gera um pásk­ana?

„Bara það sem maður vill, það er það sem er mest næs við pásk­ana. Ég held að páska­eggja­leit­in sé það eina sem fjöl­skyld­an hef­ur sam­mælst um að sé viðeig­andi að láta á móti sér á páska­dag, eina pásk­ana vor­um við til dæm­is í Nor­egi og það rigndi al­gjör­lega linnu­laust, felu­staðirn­ir voru ekki hafðir mjög krefj­andi það árið. Ann­ars bendi ég öll­um sem ætla að rol­ast á höfuðborg­ar­svæðinu yfir hátíðirn­ar að kíkja í kjall­ar­ann á Epal á Lauga­vegi, því þar verður hægt að sjá frá­bær­lega skemmti­lega mynd­list eft­ir nokkr­ar af upp­á­halds­mynd­list­ar­kon­un­um mín­um, Auði Lóu Guðna­dótt­ur, Eddu Mac, Helgu Páleyju Friðþjófs­dótt­ur og svo mig, á sýn­ing­unni „Reclutter“ sem opnaði síðasta föstu­dag.“

Föndr­ar þú um pásk­ana?

„Ég var lítið fönd­ur­skrímsli þegar ég var krakki og skil enn þá ekki hvernig for­eldr­ar mín­ir umbáru ringul­reiðina sem ég olli á heim­il­inu í aðdrag­anda hverr­ar stór­hátíðar á ár­un­um 1993-1999. Ég er aðeins slak­ari í dag, en það er alltaf hægt að plata mig í gott eggja­mál­un­ar­mis­sjón.“

Ertu með ein­hverj­ar mat­ar­hefðir um pásk­ana?

„For­eldr­ar okk­ar hafa iðulega boðið okk­ur í geggjaða páska­brönsa, með eggj­um og ávöxt­um og alls kon­ar góðu.“

Hvernig páska­egg lang­ar þig í?

„Ég væri al­veg til í lin­soðið lands­náms­hænu­egg með sriracha-sósu og sjáv­ar­salti. Og svo eitt lítið súkkulaðiegg til að tryggja að mér op­in­ber­ist máls­hátt­ur­inn sem mun verða leiðarljós mitt fram að pásk­um 2024.“

Áttu þér upp­á­halds­máls­hátt?

„Það er nátt­úru­lega alltaf mjög gam­an þegar fólk fær máls­hætti sem hitta beint í mark. Minn mjög svo at­hafna­sami fjög­urra ára son­ur tók til dæm­is for­skot á páska­sæl­una um dag­inn á páska­bingói Laug­ar­nesskóla og fékk páska­egg með máls­hætt­in­um „aum­ur er iðju­laus maður“. Hann hef­ur ein­sett sér að halda áfram að lifa eft­ir því.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda