Páll Óskar Hjálmtýsson, poppstjarna og pitsustaðareigandi, er búinn að trúlofa sig. Hinn heppni er frá Venesúela og greindi Páll Óskar frá því á tónleikum um helgina að hann hlakkaði til jólanna. Því hann og ástin myndu verja jólunum saman sem væru þeirra fyrstu jól saman en á sömu tónleikum sagði hann frá því að þeir væru nú trúlofaðir.
Páll Óskar sagði frá því í viðtali á K100 að hann væri yfir sig ástfanginn.
„Þá varð ég skotinn og þá fór allt í gang. Ég var aftur mættur í stúdíóið bullandi ástfanginn og ég held að það heyrist. Ég allavega þori að veðja því,“ sagði Páll sem segir að ástin hafi í raun kveikt á sköpunargleðinni hjá sér.
„Ég er að fá að læra fullt nýtt, svona á gamals aldri,“ sagði Páll og uppskar hlátur í stúdíóinu en hann er 53 ára gamall.
Það er nóg að gera hjá Páli Óskari þessa dagana en auk þess að skemmta landsmönnum opnaði hann pitsastað á dögunum í Vesturbæ Reykjavíkur. Staðurinn heitir Pizza 107 og opnaði Páll Óskar staðinn ásamt Valgeiri Gunnlaugssyni, fyrrverandi eiganda Íslensku flatbökunnar.
Smartland óskar Páli Óskari til hamingju með ráðahaginn!