Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir átti stórt ár í fyrra. Hún fór ekki bara í Eurovision heldur kynntist hún kærastanum sínum, tónlistarmanninum Róberti Andra Drzymkowski. Diljá fór yfir árið í sögu á Instagram-síðu sinni.
„Ég kynntist Róberti í lok júní 2023 á kaffihúsi í hádeginu í Austur-Skaftafellssýslu,“ skrifaði Diljá á Instagram. „Hjartað mitt er búið að slá mjög fast eftir það.“
Diljá og Róbert eiga tónlistina sameiginlega. Róbert er í hljómsveitinni Nostalgíu, hljómsveitin er stemningasveit sem spilar meðal annars á böllum og útihátíðum.
Smartland óskar parinu til hamingju með ástina!