„Ég er almennt séð á móti páskaskrauti“

Lára Björg Björnsdóttir aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttir.
Lára Björg Björnsdóttir aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Lára Björg Björns­dótt­ir, aðstoðarmaður Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra, ætl­ar að verja pásk­un­um á Sigluf­irði. Hún á ekki sér­stakt páska­skraut en kann að meta páska­hátíðina því þá rík­ir friður og ró.

Hvaða þýðingu hafa pásk­arn­ir fyr­ir þig?

„Friður, ró og ekk­ert vesen, annað en jól­in.“

Ger­ir þú eitt­hvað sér­stakt um pásk­ana?

„Ég ætla norður á Sigló og get ekki beðið!“

Áttu til dæm­is eitt­hvert páska­skraut?

„Nei. Ég er al­mennt séð á móti páska­skrauti. Ég er hrædd við fugla og gul­ur er ekki minn lit­ur.“

Ertu búin að upp­lifa draum­inn eða halda draum­arn­ir og mark­miðin áfram að stækka?

„Nei og nei.“

Hvað borðar þú í morg­un­mat?

„Ekki neitt.“

Áttu upp­á­halds­flík?

„Vana­lega eru það flík­ur sem ég sé annað fólk í.“

Hvaða óþarfa keypt­ir þú síðast?

„All­ur fata­skáp­ur­inn minn er und­ir þarna. Og geymsl­an.“

Hvaða hlut­ur í lífi þínu er ómiss­andi?

„Rækju­sal­at.“

Ertu skipu­lögð?

„Já. Það er minn eini kost­ur.“

Hvaða bók er á nátt­borðinu?

„Love Is­land, skáld­saga um ást og ör­lög fólks sem stend­ur á kross­göt­um.“

Love is Blind.
Love is Blind.

Hvaða sjón­varpsþátt ertu
að horfa á?

„Love is blind. Gjör­sam­lega hellaðir þætt­ir, lé­legt efni, hræðilegt fólk og ég get ekki hætt að horfa.“

New York er í miklu uppáhaldi hjá Láru því þar …
New York er í miklu upp­á­haldi hjá Láru því þar býr syst­ir henn­ar, Birna Anna Björns­dótt­ir. Sðemcer Plass/​APF

Hver er upp­á­halds­borg­in þín og af hverju?

„New York því þar á syst­ir mín heima.“

Ef þú gæt­ir farið hvert sem er í ferðalag, hvert væri ferðinni heitið?

„Ég mundi vilja fara norður á Sigló og bara vera þar. Ég mundi ganga all­an dag­inn, fara í baka­ríið þris­var á dag, sund­laug­ina og spjalla við allt það ynd­is­lega fólk sem þarna býr.“

Lára Björg Björnsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir.
Lára Björg Björns­dótt­ir og Birna Anna Björns­dótt­ir.

Hvað ger­ir þú til þess
að slaka á?

„Ég fer upp í sófa með kett­ina mína tvo, Jür­gen Klopp og Kenny Dal­glish, og fæ mér snakk í skál.“

Upp­á­haldsappið og hvers vegna?

„Færð og veður, upp­lýs­ing­ar frá Vega­gerðinni.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda