Fermingarmyndir eru tímahylki

Ljósmynd/Sigga Ella

Sigga Ella legg­ur mikið upp úr því að skapa gott and rúm­s­loft í mynda­tök­um. „Það er mik­il vægt að ferm­ing­ar­barn­inu líði vel, það er al­gjört lyk­il atriði,“ út­skýr­ir hún. 

Sig­ríður Ella Frí­manns­dótt­ir, jafn­an kölluð Sigga Ella, er með fremstu ljós­mynd­ur­um lands­ins. Hún hef­ur átt mik­illi vel­gengni að fagna frá því að hún út­skrifaðist frá Ljós­mynda­skól­an­um árið 2012.

Sigga Ella býr yfir ein­stök­um hæfi­leika þegar kem­ur að því að ná því besta út úr fólk­inu sem hún mynd­ar, enda ófeim­in, já­kvæð og málglöð. Sem sam­tíma­ljós­mynd­ara finnst henni fátt skemmti­legra en að mynda fólk í nán­asta um­hverfi sínu og á það einnig við um ferm­ing­ar­börn, en ferm­ing­ar­mynd­ir eru svo­kölluð tíma­hylki.

„Mik­il­vægt að ferm­ing­ar­barn­inu líði vel“

Hvað ger­ir þú til að skapa góða stemn­ingu?

„Ég er alltaf ég sjálf og legg mig 100% fram við að kynn­ast fólk­inu sem ég mynda. Ég er mjög áhuga­söm, finnst ánægju­legt að spjalla við fólk og eiga í sam­skipt­um við aðra. Það hef­ur fylgt mér al­veg frá æsku.“

Hvað ger­ir góða ferm­ing­ar­mynd?

„Það skipt­ir öllu máli að kom­ast að því hvers kon­ar týpa ferm­ing­ar­barnið er og byggja ljós­mynd­irn­ar upp á þann máta sem er lýs­andi fyr­ir viðkom­andi.

Mér finnst mjög gam­an að mynda ferm­ing­ar­barn inni á heim­ili sínu, í ung­linga­her­berg­inu eða á öðrum svæðum sem tengj­ast því, þá fæ ég gott tæki­færi til að fanga karakt­er­inn og tíma­bilið. Ég sting oft upp á góðum labbit­úr um hverfið. Þannig tekst mér að ná ein­stök­um augna­blik­um. Ferm­ing­ar­barnið fær að skína og taka pláss.“

Skemmti­leg­asti staður til að taka ferm­ing­ar­mynd­ir?

„Að mínu mati er það nær­um­hverfið. Sjálfri finnst mér ótrú­lega gam­an að fara í gegn­um ferm­ing­ar­mynd­irn­ar sem ég hef tekið í gegn­um árin bara til að sjá hvernig tím­arn­ir hafa breyst. Per­sónu­lega væri ég til í að eiga sams kon­ar mynd­ir af mér í dag, þetta er ákveðin heim­ild.“

„Fjöl­skyld­an var með ein­hyrn­inga­horn“

Sigga Ella hef­ur myndað fjöld­ann all­an af ferm­ing­ar­börn­um og er löngu búin að missa töl­una á öll­um tök­un­um. Hún man þó alltaf eft­ir einni eft­ir­minni­legri ferm­ing­ar­mynda­töku þar sem unnið var með þema.

„Það sem ég man eft­ir er að það var sér­stakt ein­hyrn­ingaþema. Fjöl­skyld­an var öll með ein­hyrn­inga­horn í ferm­ing­ar­mynda­tök­unni. Ferm­ing­ar­barnið og móðirin elskuðu ein­hyrn­inga,“ út­skýr­ir Sigga Ella.

Er betra að mynda á ferm­ing­ar­dag­inn eða á öðrum degi?

„Ég segi, bæði betra. Ef þú ert ótrú­lega skipu­lögð mann­eskja og kem­ur þessu fyr­ir í dag­skránni er til­valið að koma í mynda­töku á ferm­ing­ar­dag­inn. Ef ekki, þá er upp­lagt að koma fyr­ir eða jafn­vel eft­ir. Mér finnst oft æðis­legt að taka ferm­ing­ar­mynd­ir um sum­arið.“

Pass­ar enn í ferm­ing­ar­kjól­inn

Sigga Ella fermd­ist hinn 31. mars 1994. „Ég fermd­ist á mikl­um snjó­degi á Ak­ur­eyri og man ágæt­lega vel eft­ir deg­in­um. Veisl­an var hald­in í fé­lags­miðstöðinni Dyn­heim­um, sem þótti mjög flott,“ seg­ir Sigga Ella.

Hvað manstu úr þinni eig­in ferm­ingu?

„Veisl­an var hald­in á „skemmti­stað unga fólks­ins“ á Ak­ur­eyri og það var DJ-búr inni í veislu­saln­um, sem var meira en lítið geggjað. Veðrið var vont en dag­ur­inn æðis­leg­ur,“ út­skýr­ir hún.

Hvernig varstu klædd?

„Ég á ferm­ing­ar­kjól­inn og passa enn í hann. Það var pínu pönk­ari í mér. Kjóll­inn er svart­ur, aðsniðinn, lan­germa og mjög klass­ísk­ur. Ég var í háum upp­reimuðum skóm við.“

Hér er Sigga Ella á fermingardaginn sinn.
Hér er Sigga Ella á ferm­ing­ar­dag­inn sinn.
Óskar Ingi Agnesar- og Gunnarsson var meðal annars myndaður í …
Óskar Ingi Agnes­ar- og Gunn­ars­son var meðal ann­ars myndaður í svefn­her­berg­inu sínu. Ljós­mynd/​Sigga Ella
Illugi Dagur Haraldsson ásamt foreldrum sínum, Silju og Haraldi Má, …
Ill­ugi Dag­ur Har­alds­son ásamt for­eldr­um sín­um, Silju og Har­aldi Má, og syst­ur, Úrsúlu Nótt. Ljós­mynd/​Sigga Ella
Jón Bergur Agnesar- og Gunnarsson á fermingardaginn.
Jón Berg­ur Agnes­ar- og Gunn­ars­son á ferm­ing­ar­dag­inn. Ljós­mynd/​Sigga Ella
Elsa Mjöll Jónsdóttir var sannkölluð blómarós á fermingardaginn.
Elsa Mjöll Jóns­dótt­ir var sann­kölluð blóm­arós á ferm­ing­ar­dag­inn. Ljós­mynd/​Sigga Ella
Eyvindur Warén fór út í á fyrir fermingarmyndina.
Ey­vind­ur Warén fór út í á fyr­ir ferm­ing­ar­mynd­ina. Ljós­mynd/​Sigga Ella
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda