Halla Tómasdóttir er pönkari inn við beinið

Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi.
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi. Ljósmynd/Aðsend

Í til­efni kom­andi for­seta­kosn­inga ákvað Smart­land að skyggn­ast á bak við tjöld­in og spyrja for­setafram­bjóðend­ur spjör­un­um úr. For­vitn­ast um það sem fáir vita en all­ir ættu hins veg­ar að vita. 

Fimm spurn­ing­ar fyr­ir for­setafram­bjóðend­ur: Halla Tóm­as­dótt­ir

Fyrsti koss­inn?

„Fyrsti koss­inn við eig­in­mann­inn átti sér stað fyr­ir 25 árum, kvöldið sem Selma Björns­dótt­ir söng „All out of luck“. Koss­inn var svo ógleym­an­leg­ur að ég hrein­lega gleymdi sam­stund­is öll­um fyrri koss­um.“

Hvaða pla­köt prýddu veggi her­berg­is þíns á unglings­ár­un­um? 

„Ég málaði The Wall með Pink Floyd á einn vegg­inn í her­berg­inu mínu, mömmu til armæðu. Átti líka mjög flott plakat með Kiss og nokk­ur með Bono og U2.“

Fyrstu tón­leik­arn­ir?

„Lík­lega voru fyrstu tón­leik­arn­ir á Íslandi með Egó og Fræbbl­un­um og öðrum góðum pönk­rokk hljóm­sveit­um á Rút­stúni á Kárs­nes­inu í Kópa­vogi. Ég man að við skemmt­um okk­ur svo vel að ein vin­kona mín reif pilsið sitt upp í streng í djörf­um dansi.

Ég fór svo á fyrstu stór­tón­leik­ana í út­lönd­um í Bir­ming­ham í Ala­bama þegar ég var í há­skóla og sá þá U2 í fyrsta en sann­ar­lega ekki síðsta sinn.“

Upp­á­halds­árstíð?

„Íslenskt sum­ar, það jafn­ast ekk­ert á við fal­lega sum­arnótt með sinni ein­stöku birtu. Best er þá að vera úti í nátt­úr­unni og helst í góðum fé­lags­skap söng­elsk­andi vina.“

Botnaðu setn­ing­una: Minn for­seti er:

„Heiðarleg, ein­læg, dug­leg og fram­sýn kona sem leiðir hópa og kyn­slóðir sam­an til sam­tals og sam­starfs um betri framtíð fyr­ir börn­in okk­ar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda