Hafdís og Kleini blása á sögusagnir og undirbúa brúðkaup

Ástin blómstrar hjá Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur og Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni.
Ástin blómstrar hjá Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur og Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. mbl.is/Arnþór Birkisson

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir einkaþjálf­ari blés á sögu­sagn­ir um sam­bands­slit og til­kynnti að stutt væri í brúðkaup henn­ar og Kristjáns Ein­ars Sig­ur­björns­son­ar, eða Kleina, í kjöl­far skila­boða sem Haf­dís fékk frá blaðamanni á Vísi.

Haf­dís birti skjá­skot af skila­boðunum á In­sta­gram-síðu sinni sem komu frá blaðamanni á Vísi, en Haf­dís faldi þó nafn blaðamanns­ins. „Sæl kæra Haf­dís, XXXXX XXXX heiti ég blaðamaður á Vísi. Nú ganga sög­ur um að þið Kristján séuð hætt sam­an. Er það rétt?“ stóð í skila­boðunum. 

Hafdís birti skjáskot af skilaboðum frá blaðamanni á Vísi á …
Haf­dís birti skjá­skot af skila­boðum frá blaðamanni á Vísi á In­sta­gram-síðu sinni. Skjá­skot/​In­sta­gram

Í kjöl­farið birti hún mynd af henni og Kleina og skrifaði við hana: „Við erum ekki hætt sam­an enda stytt­ist í brúðkaup hjá þess­um lúðum.“

Ástin blómstrar greinilega hjá parinu!
Ástin blómstr­ar greini­lega hjá par­inu! Skjá­skot/​In­sta­gram

Segja ást­ina hafa verið áskor­un

Sam­band Haf­dís­ar og Kleina hef­ur verið áber­andi í fjöl­miðlum, en þau rötuðu fyrst í fjöl­miðla sem par í mars árið 2023. Þau ræddu um kynn­in og ást­ina í ein­lægu viðtali sem birt­ist í Morg­un­blaðinu í sept­em­ber 2023, en þar sögðu þau ást­ina hafa verið áskor­un. 

„Við vor­um oft­ast að æfa á sama tíma í rækt­inni og í raun byrjuðum við strax að laumu-flörta. Fyr­ir til­vilj­un var ég stopp á rauðu ljósi og leit til hliðar og sá hana og ákvað að biðja hana að skrúfa niður rúðuna sem hún gerði. Þá fór ég að segja henni hvað mér fannst um hana og að ég hefði áhuga á henni og þá roðnaði þessi elska og við ákváðum að skipt­ast á núm­er­um,“ sagði Kristján þegar hann var spurður hvernig þau kynnt­ust.

Í ág­úst 2023 voru Haf­dís og Kleini svo trú­lofuð og í kjöl­farið fór Kleini í helj­ar­inn­ar sam­fé­lags­miðlapásu til að ein­beita sér að mark­miðum sín­um. Haf­dís fetaði svo í fót­spor Kleina og tók sér líka hlé frá miðlun­um um tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda