Vikan byrjaði með gulri viðvörun og látum en hitinn færðist heldur betur yfir fólk þegar leið á. Patrik Atlason hélt útgáfutóleika á Reykjavíkurhöfn, Sunneva Einarsdóttir og vinkonur hennar fóru í Sky Lagoon og Elísabet Gunnarsdóttir hljóp í Hengill Ultra. Á meðan böðuðu margir sig í sólinni á Spáni eins og til dæmis Gummi Kíró og Lína Birgitta og LXS-áhrifavaldarnir og vinkonurnar Ástrós Traustadóttir og Birgitta Líf Björnsdóttir.
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir er með sundfatatískuna í ár á hreinu, en hún skellti sér í Sky Lagoon í hlébarða-bikiníi og naut sólarinnar.
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, þakkaði fyrir sig eftir útgáfutónleika á Reykjavíkurhöfn.
Hlaðvarpsstjarnan Arnar Þór Ólafsson og Helga Kristín Ingólfsdóttir mannauðsráðgjafi skelltu sér í golfferð og nutu í botn.
Ultrahlauparinn og þjálfarinn, Sigurjón Ernir Sturluson, skellti sér á heimsmeistaramótið í HYROX í Frakklandi og gaf allt sem hann átti.
Áhrifavaldurinn Sofia Elsie Nielsen átti sannarlega draumadag þar sem hún fékk bónorð í sólinni frá kærasta sínum til tíu ára!
Það voru ekki allir að baða sig í sólinni þessa vikuna, en athafnamaðurinn Egill Halldórsson fór í mikla ævintýraferð á Hornstrandir í hressandi veðurskilyrðum.
Ljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir naut sumarsælunnar í Noregi til hins ýtrasta.
Áhrifavaldurinn Elísabet Gunnarsdóttir var í skýjunum eftir fyrsta utanvegahlaupið og lengsta hlaupið sitt hingað til.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason sat fyrir hjá ljósmyndara á götum Mílanó.
Áhrifavaldurinn Sara Jasmín Sigurðardóttir hefur notið lífsins í Króatíu undanfarna viku.
Áhrifavaldurinn Aníta Mjöll Ægisdóttir hefur sannarlega notið veðurblíðunnar í Kaupmannahöfn í vikunni og gæddi sér á ljúffengu ískaffi í sólinni.
Tónlistarmaðurinn og körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson var stoltur af sambýliskonu sinni Lovísu Rut Ágústsdóttur sem gerði sér lítið fyrir og hljóp 26 km í Hengil Ultra hlaupinu aðeins 10 vikum eftir fæðingu sonar þeirra!
Það væsir ekki um Móeiði Lárusdóttur í sólinni í Grikklandi, en hún er búsett þar ásamt kærasta sínum, knattspyrnumanninum Herði Björgvini Magnússyni, og dætrum þeirra tveimur.
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan, Ástrós Traustadóttir, náði sér í góðar brúnkulínur í fallegu bikiníi frá Hildi Yeoman. Hún og hennar heittelskaði Adam Karl Helgason, framkvæmdarstjóri Zolo, eru er um þessar mundir í sólarlandaferð með fjögurra mánaða dóttur sinni Nóru Náð.
Listamaðurinn og raunveruleikastjarnan, Gunnar Skírnir Brynjólfsson, best þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Æði, naut lífsins í Vondelpark í Amsterdam ásamt tvíburabróður sínum Sæmundi og fleiri vinum. Gunnar drakk í sig menninguna í fallegu hvítu dressi!
Áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir naut veðurblíðunnar í Sky Lagoon um helgina í sjóðheitu svörtu bikiníi. Vinkonurnar og áhrifavaldarnir Sunneva Einarsdóttir, Birta Líf Ólafsdóttir og Sigríður Margrét Ágústsdóttir voru líka með í þeirri sólríku sundferð.
Þáttastjórnandinn og skemmtikrafturinn, Eva Ruza, hélt uppi litríkasta partýi ársins, The Color Run, ásamt nýkrýndri sjónvarpsstjörnu ársins á RÚV, Ágústi Beinteini Árnasyni, betur þekktur sem Gústi B. Þau voru auðvitað í banastuði og skemmtu litríkum hlaupurum á öllum aldri á meðan hlaupinu stóð!
Það er auðvelt að venjast paradísarlífinu á Spáni en Kírópraktorinn og áhrifavaldurinn, Guðmundur Birkir Pálsson, Betur þekktur sem Gummi Kíró, íhugar að framlengja sólarfríinu. Eins og sést þá hefur Gummi tekið æfingaprógrammið með í fríið enda kappinn í sturluðu formi! Hann og fjölskyldan hafa notið þar lífsins undanfarið en eru skiljanlega ekki alveg tilbúin að koma heim á klakann.
Áhrifavaldurinn og markaðsstjóri World Class, Birgitta Líf Björnsdóttir hitti vinkonu sína Ástrósu Traustadóttur á Spáni og þær smelltu af sér nokkrum flottum sundfatamyndum af sér við sundlaugarbakkann.