Tónlistarparið Karen Grétarsdóttir Serafini og Margeir Steinar Ingólfsson eru farin hvort í sína áttina. Það gustaði um parið á meðan það var saman en þau starfa bæði sem plötusnúðar.
Um áramótin fagnaði parið því að hafa verið saman í eitt ár en nú er ástarneistinn slokknaður.
Þegar Dj Margeir er ekki að vinna við veflausnir og viðskipti í fyrirtæki sínu Hugsmiðjunni er hann að þeyta skífum og semja tónlist. Karen er hins vegar plötusnúður ásamt því að stunda nám í lögfræði.
Smartland óskar parinu velfarnaðar á þessum krossgötum!