Heiður Ósk Eggertsdóttir förðunarfræðingur og Davíð Rúnar Bjarnason, landsliðsþjálfari Íslands í hnefaleikum, eru nýtt par. Parið hefur opinberað ástina en það birti myndir hvort frá öðru á Instagram um helgina.
Heiður hefur getið sér gott orð í förðunarheiminum. Hún er eigandi Reykjavík Makeup School og HI beauty ásamt Ingunni Sigurðardóttur. Nýverið gáfu vinkonurnar svo út fyrstu vörurnar undir eigin snyrtivörumerki sem kallast Chilli in June.
Davíð Rúnar sagði frá ferlinum í Dagmálum fyrr í júní. Hann stundaði hnefaleika og keppti hérlendis þegar hann var hvattur til að fara erlendis til að fá meiri reynslu en hér á landi. Hugmynd sem kviknaði í þessu samtali var að senda Davíð til Bandaríkjanna og var ein frægasta hnefaleikastöð í heimi nefnd á nafn sem möguleiki fyrir hann en það er hnefaleikastöðin Wild card í Los Angeles.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!