„Ég var mjög leiður og reiður“

Gummi Emil ætlar að halda áfram með lífið þrátt fyrir …
Gummi Emil ætlar að halda áfram með lífið þrátt fyrir að á móti blási. mbl.is/Eyþór

Einkaþjálf­ar­inn Guðmund­ur Emil Jó­hanns­son, bet­ur þekkt­ur sem Gummi Emil, seg­ist hafa frétt það af DV.is að hann hefði fengið dóm fyr­ir að keyra próf­laus. Hann var dæmd­ur í 30 daga óskil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir at­hæfið. 

Hann ætl­ar að halda áfram að vera hann sjálf­ur þrátt fyr­ir að á móti blási. 

„Ég frétti þetta af DV, það var ekki búið að upp­lýsa mig um þetta. Þeir sem komu með bréfið til mín sögðu að ég þyrfti ekk­ert að mæta fyr­ir dóm. Síðan fannst mér þetta öm­ur­legt, ég var mjög leiður og reiður. Síðan leið mér bara vel og tók ég þetta í sátt,“ seg­ir Gummi þegar hann er spurður út í hvernig hon­um leið þegar hann frétti af dómn­um. Hann seg­ist ekki sjá eft­ir því að hafa ekki komið fyr­ir dóm. Hann reyn­ir þess í stað að ein­beita sér að nú­inu og framtíðinni. 

Og hvað er það besta sem þú get­ur gert núna?

„Ég ætla gera það besta núna og ein­beita mér að því að gera það besta á hverj­um degi. Það er það að halda áfram að vera ég sjálf­ur. Veita frá mér góða og já­kvæða orku og veita öðrum inn­blást­ur,“ seg­ir Gummi. 

„Þó á móti stund­um blási þá held ég samt fókusn­um á lási,“ seg­ir Gummi vera mottó sem hann held­ur fast í og á vel við núna. 

„Sá eini sem get­ur dregið þig niður ert þú sjálf­ur. Svo lengi sem ég veit að ég er að gera góða hluti og er að gera það besta fyr­ir mig þá er ég að gera það besta fyr­ir aðra. Mót­læti verður alltaf til staðar í líf­inu og það verða alltaf hindr­an­ir. Ætlarðu að lifa í eft­ir­sjá eða skömm? Eða skapa fal­leg­an veru­leika þar sem þú sjálf­ur ert stjórn­and­inn?“ Spyr Gummi að lok­um. Svar hans við þess­ari spurn­ingu er ein­falt. Hann ætl­ar að halda áfram að vera stjórn­and­inn í eig­in lífi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda