Sumrinu fylgir aukin hreyfing og ferðalög. Áhrifavaldar, íþróttastjörnur og aðrir hafa verið iðnir við að deila myndum frá ferðalögum sínum, bæði hérlendis og erlendis. Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, baðar sig um þessar mundir í geislum sólarinnar á Ítalíu á meðan Sunneva Eir, áhrifavaldur og hlaðvarpsstjarna, spókar sig um í Króatíu ásamt góðvinkonum sínum.
Já, lífið er ljúft á Instagram!
Sunneva Eir Einarsdóttir samfélagsmiðlastjarna er erlendis í sumarfríi. Sólin hefur leikið við hana í fríinu.
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti sýndi húðflúrið og tilkynnti nýja plötu í leiðinni.
Selma Björnsdóttir var alsæl í vikunni en hún fékk óvænta afmælisveislu í vikunni.
Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir býr í Manchester og þar er komið sumar.
Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og eigandi Salina.is, setti sér markmið og náði því þegar hún hljóp heila 22 kílómetra í Hólmsheiðarhlaupinu.
Ef það er tími til að klæðast hvítu þá er það á sumrin. Tiktok-stjarnan Embla Wigum birti mynd af sér í hvítum kjól á Instagram. Hún sagðist ætla klæðast hvítum kjólum í allt sumar.
Tónlistarmennirnir Patrik Atlason og Herbert Guðmundsson skelltu sér í myndatöku saman.
Leikkonan Donna Cruz nýtur lífsins þessa dagana með vinkonum sínum í sólarlandaferð og auðvitað kíktu þær á ströndina!
Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, brosti sínu breiðasta ber að ofan í bátsferð í sólinni með sínum nánasta hópi. Mikilvægt að hlaða batteríin fyrir næsta tímabil í boltanum!
Fyrirsætan og áhrifavaldurinn, Nadía Sif Líndal, var sjóðheit á sumarkvöldi en hún var sportleg í þægilegu dressi frá Define The Line Sport, með silkiklút frá Nina og skart frá Noora Jewellery.
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir var glæsileg í nýju tónlistarmyndbandi sem hún gaf út í vikunni!
Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf ólafsdóttir var líka stödd með Sunnevu Einarsdóttur og fleiri vinkonum í Króatíu. Birta naut sín í botn og tók sér sundsprett í sjónum.
Fyrrum meðlimir 12:00 þeir Aron Már Ólafsson leikari, Egill Ploder Ottósson útvarpsmaður og Arnar Þór Ólafsson fjármálaverkfræðingur og sjónvarpsmaður gáfu út nýjan sumarsmellinn 0 upp í 100 sem var sett saman af tónlistarmanninum Jóni Bjarna Þórðarsyni.
Birgitta Líf Björnsdóttir kíkti í miðbæinn um helgina og naut veðurblíðunnar. Með í för var kornungur sonur hennar, Birnir Boði.
Dóra Júlía, betur þekkt sem DJ Dóra Júlía smellti einum kossi með kærustu sinni Báru Guðmundsdóttur, söngkonu, við Jökulsárlón um helgina. Óhætt er að segja að ástin blómstrar hjá parinu!
Erna Hrund Hermannsdóttir fagnaði sumarblíðunni ásamt stórglæsilegum hópi kvenna.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn og IceGuys-stjarnan Rúrik Gíslason kann að lifa lífinu í lúxus. Rúrik nýtur lífsins á Ítalíu um þessar mundir.
Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar var stórglæsileg á tónleikum í Hörpu á dögunum. Klæðaburður hennar minnti helst á tölvuleikakarakterinn Löru Croft úr Tomb Raider.
Birgitta Haukdal skein skært í brúðkaupi vinahjóna sinna á dögunum. Tónlistarkonan birti einnig fallega mynd af sér ásamt eiginmanni sínum Benedikt Einarssyni.