Ellý er þakklát fyrir gjaldþrotin og hræðilega sambandið

Ellý Ármanns er þakklát fyrir erfiðleikana sem hún hefur gengið …
Ellý Ármanns er þakklát fyrir erfiðleikana sem hún hefur gengið í gegnum. Ljósmynd/Aðsend

Ellý Ármanns segir að erfiðleikarnir hafi gert hana sterka og kennt henni að standa með sjálfri sér. Ellý, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, hefur meðal annars farið í gegnum tvö gjaldþrotaferli, sem hún segir að hafi tekið mikið á, en að sama skapi kennt sér mikið. 

„Það tekur enginn frá mér gleðina og þakklætið sem ég finn núna alla daga, af því að ég hef svo sannarlega þurft að vinna fyrir því. Ég hef þurft að fara í gegnum mjög erfiða tíma, en þau tímabil hafa kennt mér að standa með sjálfri mér á hverjum degi. Ég fór í gegnum tvö gjaldþrot og þau ferli hafa kennt mér mikið. Ég var í ástarsambandi, þar sem allt féll á mig eftir að því lauk, en daginn eftir að ég kláraði gjaldþrotið sem því fylgdi fékk ég boðun frá skattinum um að koma í yfirheyrslu vegna gjalda sem ég hafði ekki borgað. Ég hafði verið að reyna að redda mér einhvern vegin og á endanum fór af stað annað gjaldþrotaferli. Ég ákvað þá að hlusta á hvað lífið væri að reyna að segja mér og ég hafði greinilega ekki tekið á móti lexíunni,“ segir Ellý, sem segir oft erfitt að átta sig á því á meðan á því stendur að í erfiðleikunum geti falist stórar gjafir. 

Er þakklát fyrir erfiðleikana

„Í dag segi ég bara takk innilega fyrir gjaldþrotið, takk fyrir alla erfiðleikana, takk fyrir þetta glataða samband sem ég var í, það var hræðilegt, en það kom mér á staðinn sem ég er á í dag. Ef þessir hlutir hefðu ekki gerst, væri ég ekki þar sem ég er í dag og að gera það sem ég elska. Þetta er allt saman frábært, þó að ég óski engum þess að fara í gegnum svona erfiða hluti. En það er í raun ekkert á milli þess að vera fórnarlamb eða sterkur. Maður verður að velja. Ég vel að vera ljón og vera sterk. Alla daga. Stundum er ég alveg að byrja að detta í fórnarlambið, en sem betur fer er ég fljót að stoppa mig af og halda alltaf áfram,“ segir Ellý, sem segist æfa sig daglega í að standa með sjálfri sér. Hún notar ákveðnar æfingar til að hjálpa sér við að minna sig á þetta. 

„Ég horfi í spegilinn á hverjum morgni og segi: „Ellý, ég elska þig og stend með þér eins og þú ert. Ég er besta vinkona þín sama hvað aðrir segja. Í dag stend ég með þér.“ Svo fer ég fram og fæ mér kaffi og fer inn í daginn minn og því oftar sem ég geri þetta því betur finn ég að þetta virkar.”

Fólk vill gömlu Ellý

Ellý segist hafa breyst mjög mikið á undanförnum árum og að það komi fyrir að fólk eigi erfitt með að sætta sig við það. 

„Það gerist ennþá mjög reglulega að það komi upp að mér fólk sem man eftir gömlu Ellý og vill gömlu Ellý og getur ekki sætt sig við að ég er breytt. Fólk sem segir að ég eigi ekki að mála og að ég eigi að gera eitthvað annað en það sem ég elska. Það er búið að ákveða að ég eigi að vera í ákveðnu boxi og verður að láta það í ljós. Ég er orðin mjög góð í að láta svona fara inn um annað eyrað og út um hitt. Ég veit hver ég er og fyrir hvað ég stend og á hvaða vegferð ég er.“

Hægt er að horfa á brot úr þættinum hér fyrir neðan: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál