Rakel og Andri giftu sig á lúxushóteli í Bretlandi

Rakel Rún­ars­dótt­ir rekstr­ar­hag­fræðing­ur og Andri Ford sjúkraþjálf­ari og kírópraktor giftu sig í fal­legri at­höfn í Bretlandi í gær. Brúðkaupið var haldið í Hampt­on Manor, fimm stjörnu lúx­us­hót­eli rétt fyr­ir utan Bir­ming­ham. 

Athöfnin fór fram úti í garði lúxushótelsins.
At­höfn­in fór fram úti í garði lúx­us­hót­els­ins. Skjá­skot/​In­sta­gram

At­höfn­in fór fram úti í garði hót­els­ins í góðu veðri. Blóma­skreyt­ing­arn­ar voru lát­laus­ar og nátt­úru­leg­ar með hvít­um og græn­um blönduðum blóm­um. Rakel klædd­ist hvít­um síðkjól í at­höfn­inni en skipti síðan út fyr­ir styttri kjól þegar leið á partýið eins og vin­sælt er orðið. 

Rakel klæddist síðum hvítum kjól í athöfninni en skipti svo …
Rakel klædd­ist síðum hvít­um kjól í at­höfn­inni en skipti svo í styttri kjól þegar líða tók á veisl­una.

Áhrifa­vald­ur­inn og fag­ur­ker­inn Svana Lovísa Kristjáns­dótt­ir var gest­ur í brúðkaup­inu og var ánægð með hót­elið. Hún sýndi frá fal­legu hót­el­her­bergi sínu á In­sta­gram.

Fallegt herbergi Svönu Lovísu.
Fal­legt her­bergi Svönu Lovísu. Skjá­skot/​In­sta­gram

Hampt­on Manor er aðeins í um 25 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Bir­ming­ham. Hót­elið er gam­alt sveita­set­ur sem hef­ur verið gert upp í nú­tíma­legri stíl. 24 her­bergi eru á hót­el­inu en þar hef­ur verið vin­sælt að halda brúðkaup og aðra viðburði.

Hampton Manor er gamalt sveitasetur.
Hampt­on Manor er gam­alt sveita­set­ur. Ljós­mynd/​Skjá­skot Hampt­on Manor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda