Sunneva og Tanja opinbera hvaða lýtaaðgerðir þær hafa farið í

Sunneva Einarsdóttir og Tanja Ýr Ástþórsdóttir njóta mikilla vinsælda á …
Sunneva Einarsdóttir og Tanja Ýr Ástþórsdóttir njóta mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Áhrifa­vald­arn­ir Sunn­eva Ein­ars­dótt­ir og Tanja Ýr Ástþórs­dótt­ir op­in­beruðu á dög­un­um hvaða lýtaaðgerðir þær hafa geng­ist und­ir. 

Sunn­eva og Tanja eru með vin­sæl­ustu áhrifa­völd­um lands­ins, en Sunn­eva er með yfir 58 þúsund fylgj­end­ur á In­sta­gram á meðan Tanja er með rúm­lega 36 þúsund fylgj­end­ur á miðlin­um. 

Vin­kon­urn­ar voru gest­ir í hlaðvarpi Arn­ars Gauta Arn­ars­son­ar, bet­ur þekkt­ur sem Lil Cur­ly, og Jak­obs Jó­hanns Veig­ars­son­ar, Cur­ly FM. Þar svöruðu þær hinum ýmsu spurn­ing­um frá hlust­end­um, meðal ann­ars um hvaða lýtaaðgerðir þær hafi geng­ist und­ir. 

„Hafið þið farið í lýtaaðgerðir?“ spyr Jakob í hlaðvarp­inu og bæði Sunn­eva og Tanja svara ját­andi. „Ég held það sé aug­ljóst sko,“ bæt­ir Sunn­eva við. 

Arn­ar varp­ar svo upp ann­arri spurn­ingu þar sem hann spyr: „Ég hef mjög gam­an af „sill­um“ ... af hverju fékkstu þér „sill­ur“ og hvað varstu göm­ul?“ en þegar hann tal­ar um „sill­ur“ er hann að vitna í síli­kon­púða í brjóst­um. 

„Ég fékk mér sill­ur útaf því að ég er með bringu sem er svona inn­fall­in, og þá var þetta bara smá svona skakkt og mig langaði bara að laga það, þannig að, ég hef aldrei sagt þetta neinsstaðar, en ég er með þú veist stærri púða öðru meg­in og minni púða hinum meg­in til þess að jafna það út. Það var „po­intið“ mitt sko. Ég var al­veg lít­il, ég var bara 18 eða 19 ára,“ seg­ir Sunn­eva. 

Hefði viljað nota pen­ing­inn í annað en síli­kon

Arn­ar spyr þá hvort það sé góður ald­ur til þess að fá sér brjósta­púða, en þá svar­ar Sunn­eva: „Nei, mér finnst það al­veg frek­ar ungt sko.“ Þá bæt­ir Tanja við: „Já, ef maður hugs­ar það núna þá er það ótrú­lega ungt“ og nefn­ir einnig að það hafi verið mjög dýrt, en þegar hún horfi til baka þá hefði hún frek­ar vilja nota pen­ing­inn til að þess að stofna eigið fyr­ir­tæki eða gera eitt­hvað annað við pen­ing­inn.

Því næst er spurn­ing­unni varpað á Tönju. „Ég er búin að fara í hundrað lýtaaðgerðir ... nei djók ... ég er búin að vera núna í raun­inni að „reversa“ allt sem ég hef gert,“ seg­ir Tanja og tel­ur upp nokkra hluti sem hún hafi látið gera og sé núna búin að láta fjar­lægja, þar á meðal svo­kallað „composite bond­ing“ á tenn­urn­ar og vara­fyll­ingu, en hún seg­ist þegar hafa farið einu sinni í meðferð til að láta fjar­lægja vara­fyll­ing­una en þurfi lík­lega að fara tvisvar í viðbót.

Strák­arn­ir virðast áhuga­sam­ir um lýtaaðgerðirn­ar og spyrja nán­ar út í vara­fyll­ing­arn­ar og hvort þær fari ekki úr vör­un­um með tím­an­um. „Það á að gera það sko, en mitt bara hagg­ast ekki sko,“ svar­ar Tanja. 

„Ef þú ferð einu sinni, þá ferð það. En ef þú ferð kannski tvisvar, þris­var, þá er þetta al­veg lengi að fara úr,“ bæt­ir Sunn­eva við. Sunn­eva og Tanja viður­kenna svo báðar að hafa gengið aðeins of langt í vara­fyll­ing­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda