Sunna Rún og Emil Páls orðin hjón

Sunna Rún Heiðarsdóttir og Emil Pálsson eru orðin hjón.
Sunna Rún Heiðarsdóttir og Emil Pálsson eru orðin hjón. Skjáskot/Instagram

Sunna Rún Heiðars­dótt­ir lækn­ir og Emil Páls­son, fyrr­ver­andi knatt­spyrnumaður, eru orðin hjón. Þau fögnuðu því með sín­um allra nán­ustu í gær, mánu­dag, þar sem þau buðu upp á glæsi­lega köku og búbbl­ur með því. 

Sunna deildi gleðifregn­un­um með fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram. „Þá er það lög­fest. Við Emil erum ekk­ert fyr­ir það að bíða með hlut­ina,“ skrifaði hún við fal­lega mynd af nýgiftu hjón­un­um. 

Sunna og Emil op­in­beruðu sam­band sitt sum­arið 2022. Ári síðar eignuðust þau sitt fyrsta barn sam­an, son­inn Óli­ver Em­ils­son, sem kom í heim­inn 23. júní 2023. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Sunna Rún (@sunnar­un_)

Lagði fót­bolta­skóna á hill­una eft­ir hjarta­stopp

Í ág­úst 2022 greindi Emil frá því að hann hefði lagt fót­bolta­skóna á hill­una eft­ir að hafa tvisvar farið í hjarta­stopp, ann­ars veg­ar í leik með Sogn­dal í Nor­egi og hins veg­ar á æf­ingu með FH.

Emil hélt út í at­vinnu­mennsku árið 2017 og spilaði með Sand­efjord, Sogn­dal og Sarps­borg í Nor­egi. Þá lék hann einn A-lands­leik gegn Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um árið 2016 og á að baki 123 leiki í efstu deild hér á landi. 

Smart­land ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju með ást­ina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda