Hafdís og Kleini áætla að opna húsgagnaverslun

Einkaþjálf­ar­inn Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og at­hafnamaður­inn Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, Kleini, eru að und­ir­búa opn­un á sinni eig­in hús­gagna­versl­un. 

„Versl­un­in hef­ur enn ekki fasta staðsetn­ingu þar sem hún er enn í upp­setn­ing­ar­ferli. Hús­gögn­in sem verða í boði munu vera frá­brugðin því sem nú þegar er til á markaðnum á Íslandi. Við ætl­um að leggja áherslu á fjöl­breyti­leika og nýj­ung­ar,“ seg­ir Kleini í sam­tali við Smart­land. 

Kleini seg­ir að planið sé að vera með bæði versl­un og net­versl­un. 

„Opn­un versl­un­ar­inn­ar mun fara fram þegar markaður­inn hef­ur verið rýnd­ur og greind­ur til að tryggja að vöru­fram­boðið mæti þörf­um og ósk­um viðskipta­vin­anna,“ seg­ir hann. 

Parið byrjaði sam­an í lok mars 2023 og þau hafa verið fyr­ir­ferðar­mik­il á sam­fé­lags­miðlum. Á rúm­lega einu og hálfu ári hafa þau trú­lofað sig, byrjað að búa sam­an og tekið sam­fé­lags­miðlapásu svo eitt­hvað sé nefnt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda