Kærustuparið til 20 ára, Bjarki Bergmann Gunnlaugsson fótboltamaður, og Rósa Signý Gísladóttir doktor í sálfræðilegum vísindum og vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu eru nú hjón en þau giftu sig í gærkvöldi. Hægt er að fullyrða að reynsla sé komin á sambandið eftir þessa 20 ára prufukeyrslu. Ragnar Ísleifur Bragason athafnastjóri hja Siðmenn og leikskáld gaf hjónin saman og fór athöfnin og veislan fram í Marshall-húsinu.
Vísir greindi fyrst frá brúðkaupinu.
Bjarki er þekktur fótboltamaður en hann var atvinnumaður í faginu á sínum yngri árum. Hann lék með ÍA, KR, Nürnberg, Molde og Preston svo einhver lið séu nefnd.
Rósa Signý vinnur hjá Íslenskri erfðagreiningu en hún komst í fréttir þegar hún og Kári Stefánsson forstjóri fyrirtækisins greindu frá því að erfðabreytan sem fannst í rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar á erfðum radda hefur áhrif á hjarta og æðakerfi.
Rannsóknin leiddi í ljós að erfðabreyta í geninu ABCC9 hefur áhrif á tónhæð raddarinnar. Athyglisvert er að erfðabreytan sem fannst í rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar hefur áhrif á röddina í körlum og konum óháð líkamsstærð. Sama erfðabreyta hefur áhrif á hjarta og æðakerfi og undirstrikar samband tónhæðar og líkamlegrar heilsu.
„Tengsl við heilsu var hvatning til að skoða þetta og til eru rannsóknir sem benda til þess að breytingar á röddinni geti verið birtingamynd sjúkdóma. Í þessari rannsókn sjáum við nokkuð skýr tengsl við heilsutengdar breytur. Hærri tónhæð tengist hærri mörkum blóðþrýstings, minni vöðvamassa og hærri fituprósentu. Það er áhugavert mynstur og við sjáum í gögnunum að erfðabreytan sem tengist hærri tónhæð er sú sama og tengist hærri blóðþrýstingi,“ segir Rósa Signý Gísladóttir vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu og doktor í sálfræðilegum málvísindum.
„Í þessari skrítnu rannsókn sem fljótt á litið sýnist ekki tengjast heilsu þá eru í þessu alls kyns sniðugar upplýsingar. Þetta gerist þegar þú leggur af stað í leiðangur eins og Rósa gerði án þess að hafa einhvers konar kenningu til að byrja með. Hún leggur af stað án þess að vera með sérstakar væntingar um hvað hún kunni að finna,“ sagði Kári Stefánsson forstjóri ÍE.
Smartland óskar Bjarka og Rósu Signýju til hamingju með giftinguna!