Ómar fluttur og kominn með kærustu

Ómar R. Valdimarsson er kominn með kærustu upp á arminn.
Ómar R. Valdimarsson er kominn með kærustu upp á arminn. Ljósmynd/Aðsend

Ómar R. Valdi­mars­son, lögmaður á lög­manns­stof­unni Valdi­mars­son, er kom­inn með kær­ustu. Sú lukku­lega heit­ir Eva Mar­grét Ásmunds­dótt­ir og er fast­eigna­sali hjá Croi­sette.

DV greindi frá því að parið væri að hitt­ast og hefði farið sam­an á árs­hátíð Valdi­mars­son sem hald­in var í Berlín á dög­un­um. 

Ómar var áður kvænt­ur Mar­gréti Ýr Valdi­mars­dótt­ur kenn­ara og eig­anda Hug­mynda­bank­ans. Þau bjuggu í fal­legu húsi í Garðabæn­um sem var sett á sölu í kjöl­far skilnaðar­ins. 

Ómar R. Valdimarsson og Eva Margrét Ásmundsdóttir eru nýtt par.
Ómar R. Valdi­mars­son og Eva Mar­grét Ásmunds­dótt­ir eru nýtt par. Ljós­mynd/​In­sta­gram
Ómar festi kaup á íbúð í húsi við Laufás 3 …
Ómar festi kaup á íbúð í húsi við Lauf­ás 3 í Garðabæ.

Keypti 83,5 millj­óna íbúð 

Eft­ir skilnaðinn festi Ómar kaup á íbúð við Lauf­ás 3 í Garðabæ og greiddi fyr­ir hana 83.500.000 kr. Hann er skráður 90% eig­andi íbúðar­inn­ar á móti 10% hlut Esja Legal ehf. sem er fé­lagið sem rek­ur Valdi­mars­son lög­menn. Íbúðin er 144,1 fm að stærð og var húsið reist 1962. 

Í kjöl­farið hef­ur Ómar breytt ýmsu í sínu lífi en á dög­un­um aug­lýsti hann for­lát­an Ea­mes-stól til sölu vegna pláss­leys­is. 

Hér má sjá eldhúsið í íbúð Ómars eftir að það …
Hér má sjá eld­húsið í íbúð Ómars eft­ir að það var tekið í gegn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda