Hafdís og Kleini hætt saman

Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, Kleini, eru hætt …
Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, Kleini, eru hætt saman. Ljósmynd/Aðsend

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir einkaþjálf­ari og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, oft­ast kallaður Kleini, eru hætt sam­an. Þau hófu sam­band sitt í mars 2023 en nú er það komið á enda­stöð og parið flutt í sund­ur en þau voru ný­far­in að búa sam­an í húsi í Garðabæ. 

Kleini seg­ir í sam­tali við Smart­land að það hafi ekk­ert sér­stakt komið upp á. 

„Staðan er að við erum mjög góðir vin­ir, enda deild­um við ein­stak­lega fal­leg­um tím­um sam­an. En núna er komið að nýj­um kafla í lífi okk­ar beggja,“ seg­ir Kleini. 

Kleini opnaði á dög­un­um hús­gagna­versl­un þar sem hann sel­ur notuð hús­gögn. Hann sagði frá því að hann hefði ekki eytt krónu í fyr­ir­tækið og væri mjög sátt­ur. 

Hvað tek­ur nú við hjá þér?

Ég ætla að halda áfram að ein­beita mér að því að móta mína framtíð og halda áfram að vinna hörðum hönd­um og láta drauma mína verða að veru­leika. Ég ætla að byggja fyr­ir­tæk­in mín upp og gera allt sem ég get til að ná þeim mark­miðum sem ég hef sett mér. Þetta er mitt ferðalag - að verða betri mann­eskja í dag en ég var í gær og halda áfram að gera mitt besta, skref fyr­ir skref,“ seg­ir Kleini. 

Smart­land ósk­ar Haf­dísi og Kleina góðs geng­is í lífs­ins ólgu sjó.  

Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson.
Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda