Brúðkaup ársins voru ógleymanleg!

Rósa Signý og Bjarki, Snorri og Nadine, Ann og Björn …
Rósa Signý og Bjarki, Snorri og Nadine, Ann og Björn og Árni Oddur og Kristrún eiga það sameiginlegt að hafa gengið í hjónaband á árinu. Samsett mynd

Sjald­an hafa fleiri hjón gengið í það heil­aga en í ár. Fólk fór ýms­ar leiðir til þess að láta pússa sig sam­an. Árni Odd­ur Þórðar­son og Kristrún Auður Viðars­dótt­ir giftu sig með pompi og prakt en eng­inn veislu­gest­ur vissi að um brúðkaup væri að ræða því boðið var í 50 ára af­mæli henn­ar. Á svipuðum tíma létu Ann og Björn Zoëga pússa sig sam­an á ít­alskri eyju.

Ann og Björn Zoëga.
Ann og Björn Zoëga.

Ann og Björn Zoëga

Róm­an­tík­in var alls­ráðandi þegar bæklun­ar­sk­urðlækn­ir­inn Björn Zoëga gekk að eiga unn­ustu sína, Ann Zoëga, í sól og blíðu á eyj­unni Monte Isola, Isola­vatni á NorðurÍtal­íu. Staður­inn er vin­sæll brúðkaupsstaður en af hót­el­inu er fal­legt út­sýni út á vatnið. Brúðkaupið fór fram í byrj­un sept­em­ber. Björn stýr­ir nú stærsta sjúkra­hús­inu Sádi Ar­ab­íu en hann var áður for­stjóri Land­spít­al­ans og for­stjóri Karólínska sjúkra­húss­ins í Svíþjóð. Ann er viðskipta­stjóri á sjón­varps­stöðinni TV4 í Svíþjóð.

Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi.
Snorri Más­son og Nadine Guðrún Yag­hi. Ljós­mynd/​Blik Studio

Snorri og Nadine

Snorri Más­son þingmaður Miðflokks­ins og Nadine Guðrún Yag­hi, fyrr­ver­andi fréttamaður og for­stöðumaður sam­skipta og þjón­ustu hjá flug­fé­lag­inu Play, gengu í hjóna­band Í Siglu­fjarðar­kirkju um miðjan júní. Séra Skúli S. Ólafs­son gaf hjón­in sam­an. Á eft­ir var marserað með lúðrasveit niður á Kaffi Rauðku þar sem veislu­höld fóru fram. Nadine klædd­ist sérsaumuðum kjól frá Ylfu Hjaltested Pét­urs­dótt­ur og Snorri lét sér­sníða á sig jakka­föt hjá Agli Ásbjarn­ar­syni í Suitup Reykja­vík.

Árni Oddur Þórðarson og Kristrún Auður Viðarsdóttir.
Árni Odd­ur Þórðar­son og Kristrún Auður Viðars­dótt­ir. Ljós­mynd/​Bald­ur Kristjáns­son

Árni Odd­ur og Kristrún

Það bjóst eng­inn veislu­gest­ur við því að 50 ára af­mæl­is­veisla Kristrún­ar Auðar Viðars­dótt­ur fjár­fest­is ætti eft­ir að enda með brúðkaupi þegar hún gekk að eiga Árna Odd Þórðar­son, fyrr­ver­andi for­stjóra Mar­els. Þau gengu í hjóna­band í Dóm­kirkj­unni 14. sept­em­ber og var það séra Sveinn Val­g­arðsson prest­ur sem gaf parið sam­an. Bubbi Mort­hens söng á sinn töfr­andi hátt í at­höfn­inni og heillaði viðstadda og svo var slegið upp veislu í Mars­hall­hús­inu.

Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Reynisson.
Fann­ey Ingvars­dótt­ir og Teit­ur Reyn­is­son. Ljós­mynd/Í​ris Dögg Ein­ars­dótt­ir

Fann­ey og Teit­ur

Fann­ey Ingvars­dótt­ir, markaðsfull­trúi Bi­oef­fect og fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing, og Teit­ur Reyn­is­son, viðskipta­fræðing­ur í Lands­bank­an­um, giftu sig við fal­lega at­höfn í Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík um miðjan ág­úst. Eft­ir gift­ing­una slógu hjón­in upp veislu í Gamla bíói þar sem öllu var til tjaldað. Katla Þor­geirs­dótt­ir og Fann­ar Sveins­son stýrðu veisl­unni af mikl­um mynd­ar­skap og var ein­stök stemn­ing. Hún klædd­ist ein­stök­um kjól frá Lof­orði og var með slör og allt þetta helsta.

María Thelma og Steinar.
María Thelma og Stein­ar. Ljós­mynd/​Elísa­bet Blön­dal

María Thelma og Stein­ar

Leik­kon­an María Thelma Smára­dótt­ir og Stein­ar Thors, viðskipta­stjóri hjá Straumi, gengu
í hjóna­band 12. októ­ber. Gift­ing­in sjálf fór fram í Halls­gríms­kirkju og svo var skundað á
Grand Hót­el á eft­ir þar sem ráðahagn­um var fagnað.

Andri og Rakel.
Andri og Rakel.

Andri og Rakel

Rakel Rún­ars­dótt­ir rekstr­ar­hag­fræðing­ur og Andri Ford, sjúkraþjálf­ari og kírópraktor, giftu sig í fal­legri at­höfn í Bretlandi um miðjan ág­úst. Brúðkaupið var haldið á Hampt­on Manor,
fimm stjörnu lúx­us­hót­eli rétt fyr­ir utan Bir­ming­ham.

Signý og Bjarki gengu í hjónaband á dögunum. Hér eru …
Signý og Bjarki gengu í hjóna­band á dög­un­um. Hér eru þau ásamt af­kvæm­um sín­um. Ljós­mynd/​Bald­ur Kristjáns­son

Rósa Signý og Bjarki

Kær­ustuparið til 20 ára Bjarki Berg­mann Gunn­laugs­son fót­boltamaður og Rósa Signý Gísla­dótt­ir, doktor í sál­fræðileg­um vís­ind­um og vís­indamaður hjá Íslenskri erfðagrein­ingu, eru nú hjón en þau giftu sig 16. nóv­em­ber. Hægt er að full­yrða að reynsla sé kom­in á sam­bandið eft­ir þessa 20 ára prufu­keyrslu. Ragn­ar Ísleif­ur Braga­son, at­hafna­stjóri hjá Siðmennt og leik­skáld, gaf hjón­in sam­an og fór at­höfn­in og veisl­an fram í Mars­hall­hús­inu.

Páll Óskar og Edgar.
Páll Óskar og Ed­g­ar.

Páll Óskar og Ed­g­ar

Tón­list­armaður­inn og popp­stjarn­an Páll Óskar Hjálm­týs­son gekk í hjóna­band 27. mars. Sá heppni heit­ir Ed­g­ar Ant­onio Lucena Anga­rita og er hæl­is­leit­andi. Hann hef­ur veitt Páli Óskari mik­inn inn­blást­ur í tón­smíðum síðustu mánuði þar sem ást­in er alltumlykj­andi. Bryn­hild­ur Björns­dótt­ir, at­hafna­stjóri hjá Siðmennt og vin­kona popp­stjörn­unn­ar, sá um að pússa tur­tildúf­urn­ar sam­an. „Besti dag­ur lífs okk­ar, full­ur af ást og skil­yrðis­laus­um kær­leika,“ sagði Páll Óskar í kjöl­farið.

Arnar og Barbara gengu í hjónaband í sumar.
Arn­ar og Barbara gengu í hjóna­band í sum­ar. Ljós­mynd/​Sunday & White Studio

Arn­ar og Barbara

Barbara Björns­dótt­ir héraðsdóm­ari og Arn­ar Wed­holm Gunn­ars­son fram­leiðandi gengu í hjóna­band 28. júní á Ítal­íu. Brúðkaupið fór fram á Hotel Villa Cari­ola sem er ná­lægt Garda­vatni. Hjón­in voru gef­in sam­an af ít­ölsk­um full­trúa sýslu­manns og sá Eva María
Þór­ar­ins­dótt­ir Lange um að túlka. Pink Ice­land aðstoðaði hjón­in við
skipu­lagn­ing­una.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda