Heiðdís Rós Reynisdóttir, athafnakona og förðunarfræðingur, lifir sannkölluðu glamúrlífi í Bandaríkjunum og er afar dugleg að gefa fylgjendum sínum, sem telja ríflega 13 þúsund manns, innsýn í það á Instagram.
Hún birtir reglulega myndir af sér í glæsilegum kjólum á hinum ýmsu viðburðum og sýndi meðal annars frá því þegar hún fagnaði kjöri Donalds Trumps til forseta í nóvember.
Heiðdís Rós fagnaði 37 ára afmæli sínu nú á dögunum, en athafnakonan varð árinu eldri þann 23. mars síðastliðinn og fékk sérstaka heimsókn í tilefni dagsins.
Foreldrar hennar, Reynir Einarsson og Jakobína Laufey Jensdóttir, flugu til Bandaríkjanna til að fagna með dóttur sinni og gaf Heiðdís Rós þeim smjörþefinn af lúxuslífi sínu þar í landi, en fjölskyldan eyddi meðal annars sólríkum degi á Florida Derby og skemmti sér vel.
Heiðdís Rós hefur sýnt frá heimsókn þeirra á Instagram og ef marka má færslur hennar þá virðist fara ansi vel um þau í sólinni í Flórída.
Smartland sendir afmælisbarninu síðbúnar afmæliskveðjur!