Patrik Snær kominn á 20 milljóna Exit-jeppa

Patrik Snær Atlason er kominn á Exit-jeppa.
Patrik Snær Atlason er kominn á Exit-jeppa. Samsett mynd

Tón­list­armaður­inn Pat­rik Snær Atla­son, eða Pretty­boitjok­ko eins og hann er kallaður, þjá­ist f mik­illi bíla­dellu. Eft­ir að hann sló í gegn á tón­list­ar­sviðinu hef­ur hann keypt hvern glæsi­bíl­inn á fæt­ur öðrum. Aðallega Porsche-bif­reiðar en nú kveður við ann­an tón. Nú er hann kom­inn á nýj­an jeppa. Svo­kallaðan Exit-jeppa.

Um er að ræða Mercedes-Benz G-Class 2018 ár­gerð sem knú­inn er áfram með bens­íni. Bíll­inn er ljós­grár að lit og kom á göt­urn­ar 9. nóv­em­ber 2018. Næsta skoðun fer fram 1. sept­em­ber 2026. Pat­rik festi kaup á bíln­um í janú­ar og var ásett verð í kring­um 20.000.0000 kr. 

Benz-jepp­ar njóta vin­sælda hér­lend­is hjá hinum efna­meiri. Í nóv­em­ber héldu ís­lensk­ir auðmenn til Graz í Aust­ur­ríki til þess að skoða nýj­ustu Mercedes-Benz G-Class bif­reiðarn­ar. Í ferðinni gátu þeir sér­valið nán­ast hvert ein­asta stykki í bíl­inn, ekki bara lit á saum­um í fram­sæt­um og eitt­hvað minni­hátt­ar. Smart­land hef­ur heim­ild­ir fyr­ir því að einn auðmaður hafi keypt jeppa í ferðinni en marg­ir hafi þó verið áhuga­sam­ir enda mikið fjör að fara sam­an í hóp til að skoða bif­reiðar. 

Nísk­ur með dýr­an smekk

Það verður þó að viður­kenn­ast að það er auðvitað miklu meira töff að vera nísk­ur með dýr­an smekk. Það er miklu hag­stæðara að kaupa sjö ára gaml­an jeppa en splunku­nýj­an því bíl­arn­ir breyt­ast lítið í út­liti. Venju­leg­ir skrif­stofumaur­ar sjá alla­vega ekki mun­inn. Þar að segja ef farið er vel með þessi far­ar­tæki, þau þrif­in reglu­lega, felg­ur pússaðar og þeim klappað eins og þau væru eig­in af­kvæmi. 

Hvers vegna Exit-jepp­ar?

En hvers vegna eru þess­ir jepp­ar kallaðir Exit-jepp­ar hér­lend­is? Jú, vegna þess að greif­arn­ir í norsku Exit-þátt­un­um keyrðu um að slík­um bíl­um og þóttu töff. Ef þú vilt verða jafn­töff og Pat­rik Snær Atla­son og hinir ónefndu auðmenn sem fóru í ferð út í heim til að skoða flott­heit­in geta farið inn á vef­inn bíla­söl­ur.is. og skoðað úr­valið. 14 slík­ir bíl­ar eru til sölu. Sá ódýr­asti er 2006 ár­gerð og kost­ar 5.990.000 kr. og sá dýr­asti er á 49.900.000 kr. Hann geng­ur fyr­ir bens­íni og er keyrður 33.000 km. Hann kom á göt­urn­ar 1. janú­ar 2023. 

Smart­land ósk­ar Pat­rik til ham­ingju með að vera loks­ins kom­inn á al­vöru bíl! 

Hér má sjá samskonar bíl og Patrik keypti. Þessi er …
Hér má sjá sams­kon­ar bíl og Pat­rik keypti. Þessi er 2019 ár­gerð en fjallað var um hann í bíla­blaði Morg­un­blaðsins sama ár. mbl.is/​​Hari
Mælaborðið í Mercedes Benz G-Class er með þvi flottasta sem …
Mæla­borðið í Mercedes Benz G-Class er með þvi flott­asta sem í boði er. mbl.is/​​Hari
Mælaborðið í Mercedes Benz G-Class er með þvi flottasta sem …
Mæla­borðið í Mercedes Benz G-Class er með þvi flott­asta sem í boði er. mbl.is/​​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda