Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, sem er oftast kölluð Kata, barnasálfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar, og Þórgnýr Albertsson upplýsingafulltrúi ÖBÍ gengu í hjónaband í Dómkirkjunni 8. júní í fyrra. Þau voru búin að vera saman í tæplega áratug en örlagarík ferð á KFC leiddi þau saman þegar þau voru bæði í námi við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Kata og Þórgnýr kynntust í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún skráði sig í MH því hún vildi ólm komast í ræðuliðið en þar réð Þórgnýr ríkjum. Þau komust fljótt að því að þau áttu ýmislegt sameiginlegt fyrir utan ræðumennsku því þau voru bæði forfallnir aðdáendur Hringadróttinssögu og höfðu legið í þeim bókmenntum frá því þau voru krakkar.
„Þórgnýr var í málfundafélaginu, hafði keppt í Gettu betur árið áður, og var að leita að fólki til að vera með í félaginu. Ég hafði sótt um í MH á eiginlega einum forsendum, að komast í málfundafélagið og MORFÍs-liðið. Við kynntumst því í inntökuviðtali fyrir ráðið, urðum góðir vinir og byrjuðum svo saman í jólafríinu sama árið. Eins og ég segi þá vorum við vinir og ætluðum að fara sem slíkir að fá okkur KFC í jólafríinu en það breyttist óvænt í deit og þá varð ekki aftur snúið,“ segir hún og hlær.
Kata og Þórgnýr trúlofuðu sig 2023 og hófu strax brúðkaupsskipulagningu.
„Ég var búin að gera það alveg skýrt fyrir Þórgný að ég vildi ekki margra ára langa trúlofun,“ segir Kata, aðspurð hvers vegna þau ákváðu að gifta sig á þessum tímapunkti.
„Þegar við trúlofuðumst höfðum við búið saman í nokkur ár og áttum tvo ketti, sem við eigum enn, þannig að það var tími til kominn,“ segir hún.
Hvernig var bónorðið?
„Þórgnýr bar upp bónorðið á afmælisdaginn sinn, 8. febrúar 2023, á stofugólfinu heima. Við vorum á leiðinni að hitta fjölskylduna hans í afmæliskvöldverð og hann þóttist ætla að hjálpa mér að festa á mig skóna þannig að mig grunaði ekkert sérstakt þegar hann fór allt í einu niður á hné. Það tók mig smátíma að átta mig á því hvað væri að gerast þannig að fyrsta svarið mitt við stóru spurningunni var: „Ertu að djóka?““
Voruð þið sammála um hvernig þið vilduð hafa giftinguna, veisluna og allt þetta helsta?
„Í fyrstu vorum við ekki alfarið sammála um stóru myndina, til dæmis varðandi staðsetningu, en við ræddum okkur alltaf niður á sameiginlega niðurstöðu. Það fór þá oft eftir því hvort okkar var með sterkari skoðun í hverju tilfelli. Það þurfti til dæmis að fá Þórgný til að samþykkja að ráða manneskju til að aðstoða við skipulag og hönnun á deginum en það er ákvörðun sem við vorum síðan bæði rosalega ánægð með. Við vorum með ákveðna sameiginlega sýn á veisluna. Það er að segja hönnun, útlit og stemningu, og ég var ekki sannfærð um að það væri mögulegt á höfuðborgarsvæðinu en Þórgnýr vildi ekki halda veisluna úti á landi. Ég áttaði mig þá fljótlega á því að það þyrfti ekki að vera úti á landi til þess að fanga þessa stemningu, sérstaklega af því að við réðum hönnuð fyrir daginn sjálfan,“ segir hún en veislan var haldin í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni þar sem 150 gestir fögnuðu ástinni með þeim.
Hvernig skipulögðuð þið brúðkaupið?
„Við byrjuðum strax í sameiningu að leggja grófar línur. Við settum upp kostnaðaráætlun og skoðuðum sali og kirkju og skrifuðum niður grófa tímalínu um hvenær hitt og þetta þyrfti að gera. Síðan unnum við eftir planinu fram að hausti en þá settum við okkur í samband við Alinu hjá Og smáatriðunum og óskuðum eftir hennar aðstoð við hönnun, skreytingar, skipulag og framkvæmd. Við höfðum sjálf umsjón með ýmsu, til dæmis að bóka mat, en okkur þótti mjög gott að leita til hennar þegar við vorum í óvissu. Hún sá svo um að hanna skreytingar og stemninguna í veislusalnum í góðri samvinnu við okkur. Svo var hún okkur innan handar fram að stóra deginum og á daginn sjálfan. Fyrir það erum við óendanlega þakklát,“ segir Kata.
„Við giftum okkur í Dómkirkjunni í Reykjavík, aðallega af því að okkur finnst hún svo falleg. Við fengum sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur til að gefa okkur saman. Hún er sóknarprestur í Háteigskirkju en Kata hafði kynnst henni þegar hún var í æskulýðsstarfi í Neskirkju í Vesturbænum. Kötu þótti mikilvægt að presturinn væri einhver sem annað hvort okkar þekkti vel og gæti þar af leiðandi treyst fyrir þessu mikilvæga hlutverki,“ segir Þórgnýr.
Þótt Alina hjá Og smáatriðunum hafi haft yfirumsjón með skipulagningu á brúðkaupinu þá komu ættingjar og vinir sterkir inn.
„Vinir okkar komu til okkar í föndurkvöld, mamma Þórgnýs og amma bökuðu á fullu fyrir veisluna og svo mætti lengi, lengi áfram telja. Það var dýrmætt að sjá hvað fólk var tilbúið að hjálpa og spennt fyrir því að taka þátt,“ segir Kata.
Var ekki erfitt að gera gestalista?
„Það var auðvitað töluvert púsluspil að setja saman gestalista. Við reyndum að teygja okkur eins langt og við mögulega gátum hvað varðar stærð til að geta boðið sem allra flestum. Þetta voru nokkur löng kvöld sem við sátum saman að skrifa niður gestalistann en við erum mjög sátt með hvernig það gekk og þakklát öllum þeim sem fögnuðu deginum með okkur,“ segir Kata.
Þegar gesti bar að garði í sal Ferðafélags Íslands var boðið upp á osta, ávexti og freyðivín. Og líka bakkelsi sem mamma og amma Þórgnýs bökuðu. Kata og Þórgnýr eru bæði vegan og því vildu þau hafa veislu í sínum anda.
„Mamma hans og systir sáu svo einmitt líka um að baka brúðartertuna. Svo réðum við Nomy til að sjá um forrétt og aðalrétt. Allt í veislunni var vegan en við fórum til Nomy í aðdragandanum til að smakka til svo við gætum tryggt að örgustu kjötætur yrðu sáttar við matinn. Það reyndist alveg rétt þegar upp var staðið,“ segir hún.
Kata og Þórgnýr eru forfallnir aðdáendur Hringadróttinssögu og því var ekki úr vegi að hafa slíkt þema.
„Við höfðum til dæmis bæði lesið svo gott sem hvern stafkrók sem Tolkien skrifaði og horfum enn árlega á bíómyndirnar. Það má segja að sameiginlegur áhugi á því sé eitt af því sem leiddi okkur saman á sínum tíma. Við vorum strax í upphafi sammála um að við vildum að veislan yrði innblásin af þessum söguheimi, án þess þó að verða eins og eitthvert öskudagspartí. Upplifunin fyrir gestina átti frekar að vera eins og þau væru stödd í góðu hobbitapartíi. Við sönkuðum að okkur alls konar hugmyndum og innblæstri og Alina hjá Og smáatriðunum sá svo um útfærsluna. Það voru alls konar sniðugar útfærslur á þemanu. Við vorum með grænar plöntur úti um allt, allt bréfsefni var innblásið af söguheiminum, ofboðslegt magn kerta, við tíndum lúpínur sem héngu í loftinu og við vorum með skilti með beinni vísun í söguna til að bjóða fólk velkomið,“ segir Kata.
Kata og Þórgnýr voru vel búin á giftingardaginn sinn. Hann klæddist sérsaumuðum jakkafötum frá Suit og hún í sérsaumuðum kjól frá Eyrúnu Birnu hjá Bloom.
„Jakkafötin hans Þórgnýs voru sérsaumuð, græn hörjakkaföt úr Suitup. Hann og pabbi hans fóru saman þangað og keyptu sér báðir mjög falleg jakkaföt, skyrtur og bindi. Dagsetningin var bæði saumuð inn á jakkann og í kragann á skyrtunni. Kjólinn saumaði Eyrún Birna hjá Bloom en ég var löngu búin að ákveða að ég vildi fá kjól eftir hana því mér þykja þeir ofboðslega fallegir. Kjóllinn er akkúrat í stílnum sem ég hafði séð fyrir mér. Hann hefði getað verið saumaður úr blúndudúknum hennar ömmu en er fallegur og tímalaus. Ég paraði kjólinn síðan við slör sem ég keypti á netinu sem líktist meira skikkju til að tóna enn meira við fantasíuþemað,“ segir Kata.
Hvað um hár og förðun?
„Auður Pálmadóttir, vinkona mín, er förðunarfræðingur og ég fékk hana til að farða mig. Við gerðum eina prufuförðun og svo kom hún til mín eldsnemma um morguninn á daginn sjálfan. Hárið gerði ég svo sjálf með aðstoð hennar og annarra vinkvenna minna. Mér þótti mjög vænt um að tvær vinkonur mínar gistu hjá mér kvöldið áður. Við vöknuðum saman, fengum okkur morgunmat og gerðum okkur til saman fyrir daginn með köttunum mínum, mímósu og góðri tónlist. Það var algjör snilld. Punkturinn yfir i-ið var svo þegar Alina frá Og smáatriðum kom með blómakrans fyrir hárið mitt frá Fjórum árstíðum, sem sáu einnig um brúðarvöndinn minn.“
Hvað stendur upp úr frá deginum?
„Dagurinn allur var alveg stórkostlegur og það er erfitt að nefna eitthvað eitt sem stendur upp úr. Við gætum nefnt allar ræðurnar sem vinir og fjölskylda fluttu, samveruna, fyrsta dansinn eða fjölmargt annað. En ef við eigum að nefna eitthvað eitt þá var það þegar við laumuðumst bakdyramegin inn í salinn á meðan allir gestirnir voru uppi í fordrykk. Þannig fengum við að sjá salinn fullskreyttan í góðu tómi, fá okkur freyðivínglas saman og sitja tvö ein í smástund, nýgift, áður en allt fjörið byrjaði. Það var dýrmæt stund, sem var algjört leyndarmál þangað til núna,“ segir Kata.
Hvers vegna skiptir máli að vera í hjónabandi?
„Okkur finnst mjög mikil merking fólgin í því að hrópa það fyrir eyrum allra ástvina okkar að við ætlum að vera saman að eilífu. Að við skuldbindum okkur til þess að standa saman, hvað sem dynur á,“ segir hún.
Hvað gerið þið til að rækta ástina?
„Við leggjum áherslu á að styðja hvort við bakið á öðru og það skiptir miklu máli að halda áfram að prófa eitthvað nýtt saman og fara á stefnumót. Okkur finnst til dæmis gaman að prófa nýja veitingastaði eða drekka vín og spila saman heima. Við eigum svo ýmis sameiginleg áhugamál sem við reynum þá að iðka í sameiningu, ekki bara hvort í sínu horni.“
Fenguð þið einhver góð ráð varðandi hjónabandið sem þið hafið farið eftir?
„Okkur var sagt að það væri ákaflega dýrmætt og mikilvægt að bera alltaf virðingu hvort fyrir öðru og við leggjum okkur fram við að fara eftir þeirri reglu,“ segir hún.