Íslensk hönnun í fyrsta skipti á tískuvikunni í New York

Susanne Ostwald og Ingvar Helgason hönnuðir Ostwald Helgason.
Susanne Ostwald og Ingvar Helgason hönnuðir Ostwald Helgason. mbl.is/AFP

Tískumerkið Ostwald Helgason, sem er í eigu Ingvars Helgasonar og Susanne Ostwald, sýndi í fyrsta skipti á tískuvikunni í New York um helgina. Erlendir blaðamenn flykktust á sýninguna og voru hrifnir af hönnuninni. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt fatamerki sýnir á þessari frægustu tískuviku í heimi.

„Að fá Vogue, Style.com og alla helstu fjölmiðla á sýninguna okkar er alveg æðislegt. Við erum nú þegar af selja í Saks 5th Avenue og fleiri góðum búðum útum allan heim eða um það bil 90 verslunum í 23 löndum. Net-a-porter, Barney's og Bergdorf Goodman komu á sýninguna líka þannig að þetta er mjög mikilvægt skref fyrir okkur,“ segir Ingvar Helgason og segist hafa lært heilmikið af þessu ferli.

Þetta var líka mjög lærdómsríkt því að það er alt öðruvísi að vera með „runway“ en presentations eins og við höfum verið með áður. Á svona sýningum þarf að hugsa allt öðruvísi um línuna. Það þarf að hugsa um það hvernig línan hreyfist og virkar á myndum,“ segir hann. 

„En gekk miklu betur en við hefðum búist við,“ segir Ingvar.  HÉR má sjá línuna í heild.
Zanna Rassi Roberts og Taylor Thomas Hill frá Marie Claire …
Zanna Rassi Roberts og Taylor Thomas Hill frá Marie Claire tímaritinu sátu á fremsta bekk þegar Ostwald Helgason sýndi haustlínu 2014. mbl.is/AFP
Ostwald Helgason á tískuvikunni í New York.
Ostwald Helgason á tískuvikunni í New York. mbl.is/AFP
Haustlína Ostwald Helgason 2014.
Haustlína Ostwald Helgason 2014. mbl.is/AFP
Haustlína Ostwald Helgason 2014.
Haustlína Ostwald Helgason 2014. mbl.is/AFP
Haustlína Ostwald Helgason.
Haustlína Ostwald Helgason. mbl.is/AFP
Ostwald Helgason haust 2014.
Ostwald Helgason haust 2014. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda