Svona endast rakvélablöðin lengur

Rakvélar eru kostnaðarsamar.
Rakvélar eru kostnaðarsamar. Thinkstock / Getty Images

Rakvéla­blöð eru fok­dýr. Það er því um að gera að hugsa al­menni­lega um tækja­búnaðinn  svo að hann megi end­ast bet­ur. Karla­vef­ur­inn GQ tók sam­an nokk­ur hand­hæg ráð, sem kon­ur geta að sjálf­sögðu nýtt sér.

1) Und­ir­bún­ing­ur er nauðsyn­leg­ur. Gott er að vera bú­inn að mýkja hár­in með heitri sturtu og raksápu áður en gengið er til verks. Ef búið er að mýkja hár­in verður álagið á blöðin minna.

2) Hrein­læti er mik­il­vægt. Gott er að halda blöðunum eins hrein­um og mögu­legt er. Þess vegna ætti að skola þau með vatni eft­ir aðra hverja stroku, eða svo. Að rakstr­in­um lokn­um ætti svo að skola rakvél­ina al­menni­lega með vatni og þurrka með hand­klæði vegna þess að...

3) Raki get­ur dregið úr bit­inu á rakvéla­blöðunum, jafn­vel þegar þau eru ekki í notk­un. Þess vegna er gott ráð að geyma rakvél­ina fjarri sturt­unni. Eða bara skella henni í loftþétt­an plast­poka. Einnig get­ur verið gott að bera rakvéla­ol­íu á blöðin, olí­an ver þau gegn raka og er góð fyr­ir húðina.

Munið svo að rakvél­ar sem hannaðar eru fyr­ir karl­menn eru ekki aðeins ódýr­ari, held­ur eru þær oft jafn­vel betri en þær sem markaðssett­ar eru fyr­ir kon­ur. Ef þið viljið að legg­irn­ir séu silkimjúk­ir, en þó sleppa við að borga bleika skatt­inn, má að sjálf­sögðu kippa með sér „karla-rakvél“ næst þegar þörf er á að upp­færa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda