Eliza Reid, eiginkona Guðna Th. Jóhannessonar, nýkjörins forseta Íslands, var mikið í íslenskri hönnun á meðan á kosningabaráttunni stóð.
Á kosningavöku þeirra hjónanna á Grand Hótel klæddist hún kjól eftir Berglindi Ómarsdóttur sem nýlega útskrifaðist sem kjólameistari. Berglind hélt á dögunum glæsilega tískusýningu á ODDSSON þar sem hún sýndi nýjustu afurðir sínar. Líklegt er að hún eigi eftir að sjást meira í kjólum eftir Berglindi á næstunni enda fara þeir henni vel og hafa vandað og lekkert yfirbragð.
Berglind heillaði upp úr skónum
Í gær klæddist Eliza í kjól frá Hildi Yeoman þegar fólk flykktist að heimili þeirra að Seltjarnarnesi til að fagna sigrinum í forsetakosningunum. Kjóllinn sem Eliza klæddist heitir The violet dress eða fjólukjóllinn. Hann er úr nýjustu línu Hildar Yeoman sem hefur meira en slegið í gegn. Tískuskvísur landsins slást um þessa kjóla og svo hafa þeir einnig verið að trenda erlendis. Á dögunum hélt Hildur Yeoman sýningu í Læknaminjasafninu á Seltjarnarnesi. Katie Lee í kjól frá Hildi
Á dögunum var hann á forsíðu tímaritsins Footwear Plus í Bandaríkjunum en Edda Guðmundsdóttir sá um að stílisera forsíðuna og koma íslenskri hönnun á framfæri.