Amman fékk loks sannleikann út af HM

Amman hefur klæðst bolnum í 25 ár.
Amman hefur klæðst bolnum í 25 ár. skjásktot/Twitter

Banda­ríkja­menn halda þjóðhátíðardag sinn hátíðleg­an á hverju ári 4. júlí. Marg­ir klæða sig upp í fána­lit­un­um og það hef­ur 88 ára göm­ul amma Dale Cheesm­an gert í meira en 25 ár. Fjöl­skylda henn­ar fattaði það þó ekki fyrr en í ár að bol­ur­inn sem hún hef­ur klætt sig upp í er gerður eft­ir fána Panama, ekki Banda­ríkj­anna. 

Ömmu­barnið Cheesm­an deildi þess­ari fyndnu upp­götv­un á Twitter en fjöl­skyld­an komst að upp­runa lit­anna á boln­um í tengsl­um við HM í knatt­spyrnu sem fram fer í Rússlandi þessa dag­ana. Cheesm­an grínaðist með að amma hans hafi verið föður­lands­svik­ari í öll þessi ár. 

Ömm­unni til máls­bóta er bol­ur­inn í sömu lit­um og banda­ríski fán­inn. Tvær stór­ar stjörn­ur eru á boln­um eins og í fána Panama en í banda­ríska fán­an­um eru tölu­vert fleiri og minni stjörn­ur. 

 

Stuðnignsmenn Panama með fána Panama á HM í Rússlandi.
Stuðnigns­menn Panama með fána Panama á HM í Rússlandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda