Stal senunni í leðri og meira leðri

Katie Holmes mætti í leðurdragt.
Katie Holmes mætti í leðurdragt. mbl.is/AFP

Leður var í aðalhlutverki þegar franska tískuhúsið Chanel bauð listamönnum til kvöldverðar á Tribeca kvikmyndahátíðinni í New York í vikunni. Mættu þar margar af frægustu kvikmyndastjörnum í heimi en leikkonan Katie Holmes mætti leðurklædd og stal senunni. 

Holmes var ekki bara klædd í leðurjakka heldur buxur líka og var töffari í leðurdragtinni og hælum með rautt veski og blátt naglalakk. 

Katie Holmes.
Katie Holmes. mbl.is/AFP

Föt frá Chanel voru að sjálfsögðu áberandi í boðinu og var Holmes ekki sú eina sem klæddist leðri þótt fáir hafi verið í engu nema leðri eins og hún. Var fyrirsætan Cara Delevingne til að mynda flott í leðurbuxum og fallegum svörtum ullarjakka. 

Fyrirsætan Cara Delevingne mætti í leðurbuxum.
Fyrirsætan Cara Delevingne mætti í leðurbuxum. mbl.is/AFP
Hin mexíkóska Melissa Barrera í leðurstuttbuxum.
Hin mexíkóska Melissa Barrera í leðurstuttbuxum. mbl.is/AFP
Leikkonan Chloe Sevigny er alltaf flott.
Leikkonan Chloe Sevigny er alltaf flott. AFP
Franski ljósmyndarinn JR var í leðurjakka.
Franski ljósmyndarinn JR var í leðurjakka. mbl.is/AFP
Leikararnir Grace Van Patten og Nat Wolff.
Leikararnir Grace Van Patten og Nat Wolff. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda