Svona losnar þú við gráu hárin í samkomubanninu

Er sam­komu­bannið að fara með hé­gómann og út­lit þitt? Eru gráu hár­in orðin aðeins of sýni­leg? Þú þarft ekki að ör­vænta því það eru alltaf ein­hver ráð. 

Ég er ein af þeim sem þurfa að fara á hár­greiðslu­stofu einu sinni í mánuði til að láta lita gráu hár­in. Nú er hins veg­ar búið að loka hár­greiðslu­stof­unni og þá þurfa kon­ur að redda sér. Eitt af því sem ég á alltaf í skápn­um er Bru­nette Dry Shampoo frá label.m, hvort sem hár­greiðslu­stof­ur eru lokaðar eða ekki. Það nota ég þegar gráu hár­in eru orðin aðeins of sýni­leg en það ger­ist stund­um eft­ir tvær vik­ur. Fer eft­ir lifnaði hversu hratt hárið vex en það er annað mál.

Þetta þurr­sjampó er sniðugt að mörgu leyti því það er auðvelt að setja það í sig og svo lyft­ir það rót­inni aðeins, sem kem­ur alltaf vel út. 

Best er að farða sig fyrst og enda á því að setja þurr­sjampóið því ef þú byrj­ar á því gæti farðinn klesst við og myndað dökk­brúna slikju meðfram hár­lín­unni. Það er ekk­ert sér­stak­lega fal­legt.

Ég ákvað að sýna ykk­ur í litlu mynd­bandi hvernig þetta þurr­sjampó virk­ar í raun og veru. 

View this post on In­sta­gram

Ertu far­in að grána? Er sam­komu­bannið og lok­un á hár­greiðslu­stof­um að gera út af við þig? Hér er ein hug­mynd!

A post shared by Smart­land (@smartland­mortumariu) on Apr 7, 2020 at 7:51am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda