Tvær leiðir til að bjarga augabrúnunum

Það eru marg­ar farn­ar að sakna þess mikið að kom­ast ekki á snyrti­stofu enda fjöl­marg­ar sem fara á sex vikna fresti í lit­un og plokk­un. Ef auga­brún­irn­ar eru orðnar lit­laus­ar og án allra forma get­ur þú reddað þér með nokkr­um ein­föld­um ráðum. Í þessu sam­komu­banni hef ég aðallega notað tvær týp­ur af augn­blýönt­um sem mig lang­ar að sýna ykk­ur. Báðir eru þess­ir lit­ir góðir til síns brúks þótt virkn­in sé ólík. Þeir eiga það þó sam­eig­in­legt að ramma inn augnsvæðið og gefa meiri svip. 

Blýanturinn frá Max Factor Real Brow Fill & Shape er …
Blý­ant­ur­inn frá Max Factor Real Brow Fill & Shape er auðveld­ur í notk­un.

Á dög­un­um komst ég yfir blý­ant­inn frá Max Factor sem heit­ir Real Brow Fill & Shape. Hann er mjög ein­fald­ur í notk­un og kem­ur í nokkr­um lit­um. Öðru meg­in er blý­ant­ur og hinu meg­in er bursti þannig að auðvelt er að vinna blý­ant­inn þegar hann er kom­inn í auga­brún­irn­ar. 

View this post on In­sta­gram

Eru auga­brún­irn­ar í steik? Þarftu smá redd­ingu? Max Factor Real Brow fill&shape er svarið!

A post shared by Smart­land (@smartland­mortumariu) on Apr 17, 2020 at 8:56am PDT

Auga­brúna­lit­ur lötu kon­unn­ar! 

Svo er það nýi lit­ur­inn frá Ur­ban Decay sem kall­ast In­ked Brow. Um er að ræða blaut­an lit sem þorn­ar í hár­un­um á 30-40 sek­únd­um. Þegar lit­ur­inn þorn­ar helst hann á í allt að þrjá sól­ar­hringa ef hann er ekki þrif­inn sér­stak­lega í burtu með olíu. 

Inked Brow frá Urban Decay er blautur litur í augabrúnirnar.
In­ked Brow frá Ur­ban Decay er blaut­ur lit­ur í auga­brún­irn­ar.
Svona lítur augabrún út fyrir lit frá Urban Decay.
Svona lít­ur auga­brún út fyr­ir lit frá Ur­ban Decay.
Hér er búið að móta augabrúnirnar með litnum frá Urban …
Hér er búið að móta auga­brún­irn­ar með litn­um frá Ur­ban Decay.

Lit­ur­inn Bru­nette Betty hent­ar þeim sem eru með frek­ar dökk­ar auga­brún­ir en vilja meiri fyll­ingu í þær. Gott er að hafa eyrnap­inna við hönd­ina á meðan fólk er að æfa sig svo hægt sé að leiðrétta ef eitt­hvað fer úr­skeiðis.

Ef þú vilt bara smá lit þá er líka hægt að teikna hár með burst­an­um þar sem þér finnst þurfa í brún­ina. Gott er að setja í efsta punkt auga­brún­ar­inn­ar og fremst þar sem oft er fal­legt að teikna nokk­ur hár inn í til að fylla upp í.

Þegar lit­ur­inn er kom­inn í er gott að leyfa hon­um að þorna í eina til tvær mín­út­ur og greiða svo aðeins í gegn með auga­brúna­greiðu. Þannig er að hægt að ná um­fram­litn­um í burtu. Svo er mjög gott að setja glært auga­brúnag­el yfir til að ýfa hár­in aðeins upp. 

Ég prófaði lit­inn á In­sta­gram á dög­un­um og má hér sjá hvað hann er auðveld­ur í notk­un. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Smart­land (@smartland­mortumariu) on Apr 24, 2020 at 6:10am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda