Taktu þátt í Spariátakinu - þú gætir unnið 100.000 kr.

Á meðan kór­ónu­veir­an geis­ar reyn­ir Smart­land að gera lífið skemmti­legra og ör­lítið hress­ara. Í stað þess að breyt­ast hægt og ró­lega í myglu­svepp fyr­ir fram­an tölv­una á heima­skrif­stof­unni vilj­um við fá fólk til þess að klæða sig upp á. 

Með því að vera í spari­föt­um alla daga, setja á sig farða, blása á sér hárið og láta eins og við séum að fara að gera eitt­hvað ógur­lega spenn­andi verður ör­lítið skemmti­legra að vera til.

Veir­an hef­ur áhrif á okk­ur öll og við þurf­um að hjálp­ast að við að reyna að gera líf hvers ann­ars bæri­legra.

Smart­land veit al­veg að spari­föt geta ekki lagað al­var­leg and­leg veik­indi eða læknað kór­ónu­veiruna, en við þurf­um að gera eitt­hvað á hverj­um segi sem læt­ur okk­ur líða bet­ur. Það að hreyfa sig í 30 mín­út­ur á dag skipt­ir miklu máli og það skipt­ir líka máli að hafa rútínu á líf­inu, borða alltaf á sömu tím­um og vera í vinn­unni á meðan við erum að vinna. 

Eitt af því sem get­ur gert vinnu­dag­inn af­kasta­meiri er að klæða sig upp á. Flest eig­um við ein­hver fín föt í fata­skápn­um sem eru ryk­fall­in eft­ir að skemmt­ana­hald lagðist nán­ast af. Því leggj­um við til að þú klæðir þig í þitt fín­asta púss, tak­ir mynd og deil­ir á In­sta­gram og tagg­ir smartland­mortumariu og set­ur #spari­föt. 

Þegar þú deil­ir mynd­inni kemstu sjálf­krafa í pott­inn og gæt­ir unnið 100.000 krón­ur í versl­un­inni Mat­hilda í Kringl­unni. Í Mat­hildu fást afar fal­leg föt frá fræg­um hönnuðum eins og Ralph Lauren og Armani svo ein­hverj­ir séu nefnd­ir. 

Endi­lega drífðu þig í þessu því einn hepp­inn vinn­ings­hafi verður dreg­inn út í lok mánaðar­ins! 

Suj­an Khalifa/​Unsplash
mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda