Þetta gerir Andrea til að hressa fólk við

Andrea Maack og Anna Clausen.
Andrea Maack og Anna Clausen. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar

Andrea Maack eig­andi ilm­vatns­merk­is­ins Andrea Maack læt­ur sitt ekki eft­ir liggja í sam­komu­banni og býður nú fólki að fá ilm­vatns­pruf­ur send­ar heim að dyr­um. 

„Við hjá Andr­eu Maack vilj­um hvetja alla til að prófa ilmanna heima hjá sér á meðan ástandið er eins og það er í þjóðfé­lag­inu í dag, snerti­laust. Því vor­um við að koma með 2 ml pruf­ur af öll­um ilmun­um sem við send­um út um allt land. Þær verða á nýja ís­lenska vefn­um okk­ar andreamaack.is, eins á sölu­stöðum okk­ar í Madi­son ilm­húsi og Ki­osk,“ seg­ir Andrea. 

Þegar hún er spurð að því hvernig best sé að prófa ilm­ina seg­ir hún að fólk þurfi að gefa sér tíma. 

„Besta aðferðin við að prófa ilm er á húðinni. Með því að leyfa topp nót­un­um (sem eru fyrsta hálf­tím­ann á húðinni) að gufa upp og miðjunni að taka við. Eft­ir sirka klukku­tíma finnið þið ilm­inn sem mun síðan vera á húðinni í 12-18 klukku­tíma. Það er líka skemmti­legt að prófa tvo ilmi í einu á sitt­hvor­um úlnlið og fá viðbrögð frá heim­il­is­fólk­inu. Ilm­irn­ir eru fyr­ir öll kyn og maður veit aldrei fyrr en maður er bú­inn að prófa hvað hent­ar best.“ 

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda