Myndi frekar deyja en ganga í Crocs

David Beckham gengur ekki í Crocs-skóm.
David Beckham gengur ekki í Crocs-skóm. Samsett mynd

Fata­hönnuður­inn og fína kryddið Victoria Beckham læt­ur ekki segj­ast þó svo Crocs-skór séu komn­ir aft­ur í tísku. Frú Beckham fékk Crocs-skó á dög­un­um frá tón­list­ar­mann­in­um Just­in Bie­ber en seg­ist ekki ætla að ganga í þeim. 

Bie­ber virðist hafa sent allri Beckham-fjöl­skyld­unni skó. „Marg­ir hafa spurt mig í hverju ég ætla að vera eft­ir sam­komu­bann. Hvað finnst ykk­ur um þessa til­lögu frá Just­in Bie­ber?“ skrifaði Beckham á In­sta­gram og sýndi nýju lilla­bláu crocs-skóna sína. 

„Allt í lagi, það er svo fal­legt af Just­in að senda mér Crocs,“ sagði frú Beckham. „Hef aldrei gengið í Crocs. Þetta fékk mig til að skella upp úr, ég meina það er hugs­un­in sem skipt­ir máli.“

Skórn­ir eru hluti af sam­starfi Drew Hou­se, tísku­línu Bie­bers, og Crocs. Frú Beckham spurði fylgj­end­ur sína hvort hún ætti að ganga í skón­um. Rúm­lega helm­ing­ur svar­enda hafði ekki trú á því og þekk­ir sína konu greini­lega vel. „Ég held ég myndi frek­ar deyja en takk samt,“ skrifaði frú Beckham og þakkaði Bie­ber aft­ur fyr­ir.

Victoria Beckham fékk fjólublá crocs-skó frá Justin Bieber en ætlar …
Victoria Beckham fékk fjólu­blá crocs-skó frá Just­in Bie­ber en ætl­ar ekki að ganga í þeim. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda